
Sensa ehf.
Sensa er alþjóðlegt þjónustufyrirtæki og starfar þar reynslumikill hópur sérfræðinga með hátt þekkingarstig. Við bjóðum upp á sveigjanlegt vinnuumhverfi þar sem reynt er að koma til móts við þarfir hvers og eins eftir bestu getu.
Markmið Sensa er að vera ávallt í fararbroddi þar sem sterk liðsheild, hátt þekkingarstig og verðmæt viðskiptasambönd spila stórt hlutverk. Áhersla er lögð á að starfsfólk styrki sig í þekkingu og menntun með ýmsu móti og geti vaxið á eigin forsendum. Okkur er ekki sama eru einkunnarorð Sensa, okkur er ekki sama um viðskiptavininn eða starfsmenn okkar.
Eigandi Sensa er SoftwareOne sem er alþjóðlegt upplýsingatæknifyrirtæki með höfuðstöðvar í Swiss.

Markaðsstjóri Sensa
Við leitum að skapandi og drífandi einstaklingi sem hefur reynslu af markaðsmálum og nýtur þess að móta áherslur og koma hugmyndum í framkvæmd.
Hjá Sensa leitum við að markaðsstjóra sem leiðir markaðsstarf fyrirtækisins í takt við stefnu þess og markmið. Í starfinu felst ábyrgð á markaðsstefnu og markaðsáætlun, ásamt fjölbreyttum verkefnum sem styrkja vörumerkið, auka sýnileika Sensa og efla tengsl við viðskiptavini.
Þú munt vinna náið með sölu- og þjónustuteymum og öflugum hópi sérfræðinga að því að koma þekkingu og lausnum Sensa á framfæri á skýran og áhugaverðan hátt. Starfið býður upp á tækifæri til að setja svip á markaðsstarfið og fylgja verkefnum frá hugmynd að framkvæmd og mati á árangri þeirra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Móta markaðsstefnu Sensa og leiða markaðsstarf í takt við stefnu og markmið fyrirtækisins
- Gera markaðsáætlun, fylgja henni eftir og nýta árangursmælingar til að þróa markaðsstarfið
- Auka vitund um vörumerki Sensa, styrkja stöðu þess á markaði og tryggja samræmda ásýnd
- Stýra framkvæmd auglýsinga og markaðsherferða í nánu samstarfi við sölu- og þjónustuteymi
- Bera ábyrgð á vef Sensa og móta áherslur um þróun hans, innihald og framsetningu
- Hafa umsjón með samfélagsmiðlum Sensa og þróun markaðsefnis sem eykur sýnileika og höfðar til markhópa Sensa
- Skipuleggja og stýra viðburðum Sensa og þátttöku fyrirtækisins í sýningum og ráðstefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af stafrænu markaðsstarfi, markaðsherferðum og vörumerkjastjórnun
- Framúrskarandi íslenskukunnátta
- Færni í textagerð og skýrri miðlun á íslensku og ensku
- Þekking á árangursmælingum og geta til að nýta niðurstöður til umbóta
- Frumkvæði, sjálfstæði, skipulögð vinnubrögð og góð samskipta- og samstarfsfærni
- Reynsla af viðburðahaldi er kostur
- Áhugi á upplýsingatækni og stafrænum lausnum er kostur
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur fyrir þá sem kjósa annan ferðamáta en einkabílinn
- Heilsueflingarstyrkur
- Hjólageymsla, líkamsræktar- og sturtuaðstaða
- Fyrsta flokks mötuneyti
- Sveigjanlegur vinnutími
Advertisement published27. October 2026
Application deadline8. November 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
CanvaMailchimpMarket analysisMarketingOnline marketingBrand management
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (2)


