Körfuknattleikssamband Íslands
Körfuknattleikssamband Íslands
Körfuknattleikssamband Íslands

Markaðs- og kynningarfulltrúi KKÍ

Markaðs- og kynningarfulltrúi ber ábyrgð á markaðs- og kynningarmálum KKÍ. Hlutverk starfsins er fjölbreytt en meðal annars er það; að auka enn frekar útbreiðslu og sýnileika íþróttarinnar, fá fleiri samstarfsaðila að starfi KKÍ og aðildarfélaganna og tryggja faglega miðlun upplýsinga.

Markaðs- og kynningarfulltrúi er ný staða á skrifstofu KKÍ, því er um spennandi tækifæri að ræða fyrir réttan aðila að móta starfið og efla ennfrekar starf KKÍ og aðildarfélaganna.

Ábyrgðasvið:

  • Mótun, framkvæmd og eftirfylgni markaðs- og kynningarstefnu KKÍ
  • Markaðssetning og stuðningur við mótahald, afreks-og landsliðsmál
  • Viðburðastjórnun og samræming á upplifun á mótum og landsleikjum á vegum KKÍ
  • Gerð markaðs- og kynningaráætlunar fyrir innlend og alþjóðleg verkefni
  • Skipulag, utanumhald og stjórnun á 3x3 götuboltamótum (streetball)
  • Samningar og þjónusta við samstarfsaðila
  • Vöru- og þjónustuþróun, sölumál og samskipti við hagsmunaaðila
  • Ábyrgð á vefsíðu og samfélagsmiðlum KKÍ

Umsóknarfrestur er til og með mánudagsins 16 febrúar 2026 .

Frekari upplýsingar gefur Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri KKÍ [email protected]

Advertisement published28. January 2026
Application deadline16. February 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Engjavegur 6, 104 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags