EssenceMediacom Íslandi
EssenceMediacom Íslandi
EssenceMediacom Íslandi

Birtingastjóri/-stýra

OOH, GRP, TRP, CTR, CPM, Reach, Impressions o.s.f. Ef þetta eru hugtök sem þú þekkir, þá erum við að leita að þér.

MediaCom á Íslandi (EssenceMediacom) óskar eftir metnaðarfullum og skipulögðum birtingastjóra/-stýru í öflugt og metnaðarfullt teymi í miðlunar- og birtingamálum. Viðkomandi mun bera ábyrgð á skipulagningu, stýringu og þróun birtinga. Í nánu sambandi við fjölbreyttan hóp viðskiptavina, starfsmanna og birgja

Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á markaðs- og auglýsingamálum, býr yfir góðri innsýn í virkni mismunandi miðla og skilur hvernig miðlar styðja við heildstæða samskiptastefnu. Reynsla af birtingum í prent-, sjónvarps-, útvarps- og/eða umhverfis miðlum er mikilvæg. Hæfni til að setja saman rannsókna drifna miðla strategíu, geta rýnt árangur og haft hæfni til að miðla gögnum skýrt áfram. Sjálfstæð vinnubrögð sem og geta til að vinna með teymi í hröðu og faglegu umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Gerð og stýring birtingaáætlana í hefðbundnum miðlum
  • Ráðgjöf, dagleg samskipti og endurgjöf til viðskiptavina, innlendra sem erlendra
  • Samskipti og samstarf við innlenda miðla
  • Mat á miðlavali með tilliti til markhópa, dreifingar og árangurs
  • Greining á árangri herferða og skýrslugerð
  • Áætlanagerð og þátttaka í stefnumótun er tengist fjölmiðlanálgun viðskiptavina
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af birtingamálum eða markaðssetningu.
  • Þekking á fjölmiðlamælingum, rannsóknum og markaðsgögnum
  • Mjög góð samskiptahæfni og sterk þjónustulund
  • Skipulögð, sjálfstæð og ábyrg vinnubrögð
  • Frumkvæði, greiningarhæfni og vilji til að þróast faglega
  • Gott vald á íslensku og ensku
Advertisement published27. January 2026
Application deadline20. February 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Álfheimar 74, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.GooglePathCreated with Sketch.BrandingPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.Search Engine Optimization (SEO)PathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Market analysisPathCreated with Sketch.MarketingPathCreated with Sketch.Online marketingPathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.Definition of target groupsPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Report writingPathCreated with Sketch.Research data analysis
Professions
Job Tags