KPMG Law ehf.
KPMG Law ehf.
KPMG Law ehf.

Lögfræðingur hjá KPMG Law - Akureyri

Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum lögfræðingi til þess að sinna fjölbreyttri ráðgjöf og þjónustu til viðskiptavina í frammistöðudrifnu umhverfi. Viðkomandi mun hafa starfsstöð á skrifstofu KPMG á Akureyri.

Við leggjum ríka áherslu á að samvinnu milli sviða með breiða nálgun gagnvart viðskiptavinum okkar og mun viðkomandi því vinna náið með öðrum ráðgjöfum á sviðum fjármála og rekstrar, bæði á íslenskum og erlendum vettvangi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn lögfræðiráðgjöf fyrir viðskiptavini KPMG.
  • Þátttaka í framkvæmd áreiðanleikakannana.
  • Aðstoð í tengslum við skatta- og félagarétt.
  • Samninga- og skjalagerð um framkvæmd og frágang viðskipta.
  • Ráðgjöf og þjónusta tengd kaupum og sölum fyrirtækja og fjármögnun þeirra.
  • Aðstoð við frumkvöðla og félög í nýsköpun.

Hæfniskröfur:

  • Meistaragráða í lögfræði.
  • Kostur ef umsækjandi hefur reynslu af viðskipta-, fjármála- og/eða fyrirtækjalögfræði.
  • Brennandi áhugi á fjármálum fyrirtækja, rekstri og viðskiptum.
  • Þekking og áhugi á stafrænni þróun og tækni er mikill kostur.
  • Framúrskarandi hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku.
  • Geta og metnaður til að vinna í krefjandi vinnuumhverfi og undir álagi.
  • Lipurð í mannlegum samskiptum og þjónustulund.

Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við allt fólk til að sækja um óháð kyni.

KPMG Law ehf.

KPMG Law er sérhæfð lögmannsstofa í alþjóðlegu samstarfi KPMG sem hefur vaxið mjög á undanförnum árum og er ein af leiðandi stofunum hér á landi á sviði fyrirtækjalögfræði. Við leggjum ríka áherslu á að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og bjóðum upp á frábær tækifæri fyrir metnaðarfullt fólk til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Hjá okkur starfar á fjórða tug lögmanna, lögfræðinga og annarra sérfræðinga. Við störfum náið með öðrum sérfræðingum KPMG innanlands og erlendis sem gerir okkur kleift að veita þjónustu á breiðum grunni, hvort sem er á sviði lögfræði, fjármála eða rekstrar. Sérfræðingar okkar þekkja lögin og skilja áhrif þeirra á rekstur.

Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG Law:

  • Fjölbreytt verkefni í alþjóðlegu umhverfi og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptalífið og samfélagið í heild.
  • Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum og þróast í starfi.
  • Heilsueflandi vinnustaður og aðgangur að líkamsræktarstyrk og samgöngustyrk.
  • 4 tímar á ári hjá sálfræðingi eða öðrum ráðgjöfum sem styðja við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
  • Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi skrifstofum og að heiman þegar við á.
  • Tækifæri til að vinna á skrifstofum KPMG út um allan heim.
  • Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
  • Og margt fleira.

Umsóknarfrestur er til og með 27. janúar 2025.

Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar). Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum, á hsteinthorsdottir@kpmg.is.

Advertisement published13. January 2025
Application deadline27. January 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Glerárgata 24, 600 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags