Heilsuvernd Heilsugæsla - Urðarhvarfi
Heilsuvernd Heilsugæsla - Urðarhvarfi
Heilsuvernd Heilsugæsla - Urðarhvarfi

Ljósmóðir óskast til starfa hjá Heilsuvernd Heilsugæslu.

Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, almennri heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir hjúkrunarheimili. Heilsuvernd rekur heilsugæsluna í Urðarhvarfi.

Heilsugæslan Urðarhvarfi er einkarekin heilsugæsla sem starfar undir merkjum Heilsuverndar. Heilsuvernd heilsugæslan er skipuð sérhæfðu og metnaðarfullu starfsfólki sem leggur áherslu á faglega og framúrskarandi þjónustu. Við leggjum áherslu á að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði fólks og efla heilbrigði og vellíðan. Heilsugæslan Urðarhvarfi býr yfir sérstaklega góðum starfsanda, samvinnu og metnaði starfsfólks.

Heilsuvernd heilsugæsla óskar eftir að ráða ljósmóður í sitt öfluga teymi. Um 50-80% starfshlutfall er að ræða eftir samkomulagi. Við leitum að einstakling sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi, er sjálfstæður í vinnubrögðum en vill um leið vera hluti af sterku teymi.

Hjá Heilsuvernd heilsugæslu leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi og faglega þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Mæðravernd
  • Leghálsskimanir
  • Getnaðarvarnaráðgjöf
  • Heimavitjanir nýbura
  • Þátttaka í þróunar- og gæðaverkefnum
  • Teymisvinna með öðrum fagaðilum heilsugæslunnar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Próf og starfsréttindi sem hjúkrunarfræðingur
  • Próf og starfsréttindi sem ljósmóðir
  • Starfsreynsla sem ljósmóðir kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta
Advertisement published3. February 2025
Application deadline16. February 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Urðarhvarf 14, 203 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags