Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins
Við viljum fjölga í okkar öflugu og góðu teymum á barnadeild og óskum því eftir hjúkrunarfræðingum til starfa. Við bjóðum jafnt velkominn áhugasaman reynslubolta sem og nýútskrifaðan hjúkrunarfræðing. Starfshlutfall er 60-100%, unnið er í vaktavinnu og er starfið laust frá 1. mars 2025 eða eftir samkomulagi.
Í boði er góð einstaklingshæfð aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga og líflegt starfsumhverfi. Margvísleg tækifæri eru til að þróa með sér góða þekkingu í barnahjúkrun og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum. Deildin sinnir breiðum skjólstæðingahópi barna frá fæðingu að 18 ára aldri og fjölskyldum þeirra. Þar er veitt fjölbreytt heilbrigðisþjónusta með hugmyndafræði fjölskylduhjúkrunar að leiðarljósi. Áhersla er lögð á öryggismenningu og heilnæmt starfsumhverfi þar sem fagfólk býr við sálrænt öryggi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmið með styttingu vinnuvikunnar er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf, þannig að störf í vaktavinnu verði eftirsóknarverðari.