Liðveisla við börn í íþróttum
Múlaþing leitar að sjálfstæðum, hressum, ábyrgðarfullum og jákvæðum einstaklingum yfir 18 ára aldri til að starfa með börnum með stuðningsþarfir í íþróttum.
Starfsmaður starfar með barni og/eða ungmenni með einhvers konar fötlun, röskun og/eða sérþarfir. Meðal verkefna eru félagslegur stuðningur og að auka virkni einstaklingsins. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð, lausnamiðaða hugsun og frumkvæði í daglegum verkefnum.
Um er að ræða hlutastarf (um það bil 25%) og er starfið laust nú þegar.
-
Styðja og efla barnið í íþróttaiðkun.
-
Félagslegur stuðningur.
-
Þjálfun í athöfnum daglegs lífs.
-
Virkja og efla sjálfstæði.
- Önnur verkefni í samráði við yfirmann og foreldra barns.
- Reynsla og þekking sem nýtist í starfi
-
Góð hæfni í mannlegum samskiptum, hæfileiki til samvinnu, sveigjanleika og tillitssemi.
-
Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
-
Lausnarmiðaður og geta brugðist hratt og vel við óvæntum atburðum sem upp koma.
-
Hreint sakavottorð
-
Bílpróf er kostur