Leikskólinn Akrar
Leikskólinn Akrar
Leikskólinn Akrar

Leikskólinn Akrar auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra

Leikskólinn Akrar eru fjögurra deilda leikskóli þar sem áhersla er lögð á nám í gegn um leik í skapandi námsumhverfi. Grunngildi leikskólans eru virkni og vellíðan þar sem við viljum að öllum börnum og fullorðnum líði vel og upplifi gleði og sigra á hverjum degi. Vellíðan barna er höfð í fyrirrúmi og starfið skipulagt út frá þátttöku og virkni barnanna í öllu starfinu. Sköpun og læsi skapa stóran sess í starfinu. Börnin læra af eigin reynslu með því að skynja námið á eigin hátt.

Á Ökrum vinnum við eftir "Uppeldi til ábyrgðar" (uppbyggingastefnan). Uppeldi til ábyrgðar snýst að mestu um samskipti, ef samskipti eru góð og gefandi þá má byggja á þeim árangursríkt nám. Þetta er aðferð við að kenna sjálfstjórn og sjálfsaga og styrkja einstaklinga í því að læra af mistökum. Markmiðið er að þjálfa börn í að vera þau sem þau vilja vera út frá eigin sannfæringu en ekki bara að geðjast öðrum.

Ef þú hefur gaman af starfi með börnum og ólíkum einstaklingum þá eru miklar líkur á að þú fallir vel í hópinn okkar. Starfsandi er góður og einkennist af jákvæðni, gleði og góðri samvinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri leikskólans
  • Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans
  • Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins
  • Sinnir þeim verkefnum sem yfirmaður felur honum
  • 50% starfsins er inni á deildum sem staðgengill deildarstjóra meðan þeir sinna undirbúningi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 60 námseiningar í uppeldis- og kennslufræðigreinum
  • Sérhæfð hæfni sem snýr að skólaþróun, stjórnun, rekstri og stjórnsýslu
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða reynsla af stjórnun æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi C samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Afburða samskiptahæfni
  • Mjög góðir skipulagshæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Á Ökrum er 38 stunda vinnuvika. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar vegna dreifingar vinnutíma starfsfólks
  • Leikskólinn lokar kl. 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga
  • Skipulagsdagar eru fimm á skólaári og eru samræmdir í leik- og grunnskólum Garðabæjar
  • Starfsmannafsláttur er af leikskólagjöldum
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt bókasafnskort í Bókasafn Garðabæjar ásamt fríu menningarkorti í Hönnunarsafn Íslands
  • Eftir sex mánuði í starfi getur starfsfólk fengið heilsuræktarstyrk
Advertisement published28. May 2025
Application deadline12. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Línakur 2, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Planning
Professions
Job Tags