Fagrabrekka
Fagrabrekka
Fagrabrekka

Leikskólastjóri óskast í leikskólann Fögrubrekku

Leikskólinn Fagrabrekka er fjögra deilda leikskóli þar sem dvelja um 70 börn. Leikskólinn starfar eftir hugmyndafræði Reggio Emilia en mikil áhersla er lögð á að börnin læri af reynslu.

Megin áhersla er lögð á skapandi starf í öllum listgreinum og lýðræðisleg vinnubrögð starfsfólks og barna auk getu barna til að afla sér reynslu og þekkingar á sínum eigin forsendum. Tónlist og hreyfing er rauði þráðurinn í starfinu sem stuðlar að vellíðan og hefur í för með sér gleði og ánægju. Einkunnarorð leikskólans virðing, gleði og frumkvæði eru ávallt í forgrunni.

Við leitum að metnaðarfullum og skapandi einstakling í stöðu leikskólastjóra. Leikskólastjóri ber faglega og rekstrarlega ábyrgð á starfi leikskólans, stendur vörð um réttindi barna og stuðlar að því að barnið njóti bestu þjónustu sem mögulegt er á hverjum tíma.

Upplýsingar um leikskólann má finna á http://fagrabrekka.kopavogur.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi leikskólans og að unnið sé eftir aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá leikskólans
  • Faglegur leiðtogi leikskólans sem deildir verkefnum og ábyrgð til starfsfólks í samræmi við skólanámskrá
  • Ábyrgð á að rekstur leikskólans sé innan ramma fjárhagsáætlunar
  • Ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningu, vinnutilhögun og starfþróun
  • Ábyrgð á foreldrasamstarfi
  • Kynna sér nýjungar í starfi, miðla þekkingu til starfsfólks og hvetja til þróunar og nýbreytni í skólastarfi

 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
  • Framhaldsmenntun (MA, Med, MT eða diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða
  • Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla
  • Reynsla af rekstri leikskóla og eftirfylgni fjárhagsáætlana
  • Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum
  • Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti  
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins

Styttri vinnuvika, stytting að hluta til notuð í jóla-, páska- og vetrarfrí

Advertisement published8. July 2025
Application deadline4. August 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Fagrabrekka 26, 200 Kópavogur
Type of work
Professions
Job Tags