Reykhólahreppur
Reykhólahreppur
Reykhólahreppur

Leikskólakennari óskast

Um er að ræða 100% stöðu leikskólakennara á Hólabæ, leikskóladeild Reykhólaskóla á Reykhólum frá og með 1. maí 2026. Einnig kemur til greina að ráða einungis í starf í maí og júní.

Næsti yfirmaður er deildarstjóri leikskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfssvið: Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu viðkomandi sveitarfélags.

Meginverkefni
Uppeldi og menntun: Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.

Stjórnun og skipulagning:

  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.

Foreldrasamvinna:

  • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
  • Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.

Annað:

  • Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræðinga sem tengjast leikskólanum í samráði við deildarstjóra.
  • Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
  • Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur

Leikskólakennararéttindi eða önnur uppeldismenntun

·       Góð íslenskukunnátta

·       Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum

·       Góðir samskiptahæfileikar og færni í mannlegum samskiptum

·       Jákvæðni og frumkvæði 

·       Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

·       Hreint sakavottorð

Fríðindi í starfi

Árskort í sundi og flutningsstyrkur

Advertisement published12. April 2026
Application deadline26. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Skólabraut 1, 380 Reykhólahreppur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Clean criminal record
Professions
Job Tags