Alcoa Fjarðaál
Alcoa Fjarðaál
Alcoa Fjarðaál

Leiðtogi framleiðsluteymis í steypuskála / Coach for the Production Team in the Casthouse

Alcoa Fjarðaál leitar að jákvæðum og drífandi einstaklingi í starf leiðtoga framleiðsluteymis í steypuskála. Meginverkefni leiðtogans eru að leiða teymi, sinna mönnun og öðrum stjórnunartengdum verkefnum, fylgja eftir framleiðsluáætlunum og taka virkan þátt í daglegum verkefnum við framleiðslu.

Á sama tíma og við hvetjum öll þau sem uppfylla þessi skilyrði til að sækja um, teljum við að fjölbreyttur bakgrunnur starfsfólks og ólík sjónarmið styrki okkur sem heild.

Í Fjarðaáli er lögð áhersla á jafnrétti. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til þess að sækja um stöðuna.

Sæktu um og taktu þátt í að móta framtíðina með okkur!

Helstu verkefni og ábyrgð

Verksvið  

  • Lágmarkar áhættu og vinnur að öruggu og heilsusamlegu starfsumhverfi.  

  • Leiðbeinir einstaklingum í teyminu til að styrkja þá og efla.  

  • Vinnur að góðum starfsanda, eflir og hvetur sitt teymi til dáða.  

  • Framfylgir framleiðsluáætlunum. 

  • Fylgir eftir þeim væntingum sem gerðar eru til framleiðslustarfsmanna eins og þær eru skilgreindar í aðal- og aukahlutverkalýsingum.  

  • Tekur þátt í ráðningu nýrra starfsmanna.  

  • Vinnur að úrlausn ágreiningsmála í samvinnu við aðra stjórnendur og mannauðsteymi. 

  • Er leiðandi í umbótastarfi og rannsóknum atvika til að auka öryggi og bæta framleiðsluferla.  

  • Sinnir verkefnum innan síns ferlis. 

  • Sér til þess að umgengni á sínu framleiðslusvæði sé til fyrirmyndar. 

 

Dagleg verk 

  • Hefur viðveru á framleiðslugólfi að jafnaði 50% af sínum vinnutíma.  

  • Veitir endurgjöf á hverri vakt til þeirra starfsmanna sem eru á vakt hverju sinni.  

  • Gerir úttektir á hverri vakt á öryggismálum, umhverfi, verklagi, umgengni o.fl. 

  • Fylgir eftir starfsþróun starfsmanna og tekur að lágmarki tvö starfsþróunarsamtöl við hvern starfsmann á ári.  

  • Tryggir rétta mönnun vakthópa, þjálfun þeirra og vinnuskil.  

Ábyrgð í starfi 

Leiðtogi starfar í umboði framkvæmdastjóra ferlis. Meginábyrgð leiðtoga er að halda utanum framleiðsluteymi. 

Leiðtogi ber ábyrgð verkstjóra skv. lögum nr. 46/1980, Lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. 

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntun og/eða réttindi sem krafist er 

Ekki eru gerðar sérstakar kröfur um menntun, en öll menntun sem gæti nýst í starfi er kostur. 

 

Reynsla sem krafist er 

Starfsreynsla á vinnumarkaði, a.m.k. 5 ár. Starfsreynsla í framleiðslufyrirtæki er kostur. Stjórnunarreynsla er kostur.  

Hæfni sem krafist er 

  • Heilindi: Hæfni til að ávinna sér traust innan fyrirtækisins með því að vinna samkvæmt gildum og vinnustaðarsáttmála Alcoa Fjarðaáls. 

  • Leiðtogahæfni: Hæfni til að sýna ábyrgð í verki, stuðla að öflugri liðsheild, sýna frumkvæði, leiða breytingar og fá samstarfsfólk til liðs við sig. 

  • Samskiptahæfni: Hæfni til að skapa jákvæða menningu á vinnustaðnum og hvetja starfsfólk til dáða. Hæfni til að tryggja upplýsingaflæði og viðhafa gagnsæi í ákvarðanatöku. 

  • Árangursmiðun: Hefur hæfni til að tryggja skilvirka framkvæmd áætlana og eftirfylgni með verkum.   

  • Góð almenn tölvufærni og geta til að tileinka sér notkun tölvukerfa. 

  • Skipulagshæfileikar. 

Fríðindi í starfi
  • Mötuneyti
  • Fríar rútuferðir til og frá vinnu
  • Heilsutengdir styrkir
  • Velferðaþjónusta
Advertisement published24. June 2026
Application deadline16. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Hraun 158199, 731 Reyðarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Leadership
Professions
Job Tags