

Læknir - Tímabundið starf
Læknir með lækningaleyfi óskast til starfa á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga. Um er að ræða tímabundið starf til sex mánaða. Ráðning er frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Starfið felur í sér göngudeildarvinnu á dag- og göngudeild blóð- krabbameinslækninga 11B/C. Sjúklingar sem sækja þá deild eru í krabbameinslyfjameðferð, eftirliti eftir meðferð krabbameina eða með bráð vandamál í tengslum við undirliggjandi sjúkdóm eða meðferð. Góð samvinna er við legudeild 11 EG, Heimaspítala og HERU. Læknirinn fær sérstaka starfslýsingu, aðlögun og skipulagða handleiðslu sérfræðilæknis.
Unnið er í náinni samvinnu við sérfræðilækna í krabbameinslækningum og felur starfið í sér þverfaglega teymisvinnu með öðrum sérgreinum læknisfræðinnar sem og öðrum starfstéttum sem koma að meðferð krabbameina. Lögð er sérstök áhersla á traust og teymisvinnu innan einingarinnar.
Starfið getur nýst vel þeim sem hafa hug á frekara sérnámi í krabbameinslækningum eða þeim sem hugsanlega hyggja á frekara sérnám í öðrum greinum sem koma að greiningu og meðferð krabbameina, svo sem á sviðum lyf- og skurðlækninga.
Fagleg árvekni og endurskoðun klínískra leiðbeininga og verkferla er hluti af fagmennsku deildarinnar.
Vinnulagið á deildinni byggir á samvinnu margra starfsstétta með það að markmiði að einstaklingar sem greinst hafa með krabbamein fá viðeigandi meðferð og stuðning.
Íslenska

































