

Afleysingastarf í teymi sálgæslu
Landspítali auglýsir laust til umsóknar afleysingastarf í teymi sálgæslu á spítalanum. Um er að ræða afleysingu til 1 árs fyrir tímabilið 1.9.2026-31.8.2027 og starfshlutfall er 100%.
Starfsfólk teymisins veitir sálgæslu og stuðning til sjúklinga, aðstandenda og samstarfsfólks á öllum sviðum spítalans. Teymið sinnir sálgæslu og helgihaldi og starfar í samvinnu með öðru starfsfólki og teymum spítalans. Þjónusta teymisins er veitt án aðgreiningar eftir trúar- eða lífsskoðunum. Markmið sálgæslunnar er að liðsinna þeim sem glíma við sárar tilfinningar, erfiðar tilvistarspurningar og aðlögun breyttra aðstæðna tengda veikindum eða alvarlegum áföllum. Sálgæslan sinnir öllum sviðum Landspítala og ganga starfsmenn hennar einnig bakvaktir og sinna útköllum um kvöld, nætur og helgar.
Innan teymisins starfa nú sjúkrahúsprestar og sjúkrahúsdjákni. Opið er fyrir umsóknir frá öllum sem hafa viðeigandi menntun og þjálfun. Teymið er í virku samstarfi við félög og trúarsamtök utan spítalans til að mæta óskum og þörfum fjölbreytilegs samfélags um þjónustu.
Icelandic
English
































