Hagstofa Íslands
Hagstofa Íslands
Hagstofa Íslands

Kerfisstjóri

Viltu bætast í öflugan og skemmtilegan hóp starfsfólks Hagstofu Íslands?

Hagstofa Íslands leitar eftir öflugum kerfisstjóra til starfa. Starfið felst innri notendaþjónustu ásamt rekstri og áframhaldandi uppbyggingu á tölvuumhverfi stofnunarinnar.

Kerfisstjóri mun sinna rekstri netþjóna og fjölbreyttra kerfislausna sem eru nauðsynlegar í daglegum rekstri Hagstofunnar auk þess að koma að rekstri útstöðva og þjónustu við starfsfólk.

Mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á að vinna í hóp og eigi auðvelt með að starfa með öðrum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Rekstur innri og ytri kerfa Hagstofunnar

  • Tækniþjónusta við starfsmenn Hagstofunnar

Hæfniskröfur

  • Þekking og reynsla af rekstri Windows tölvukerfa er skilyrði

  • Þekking á sýndarumhverfum fyrir tölvurekstur

  • Þekking á helstu öryggisógnum upplýsingakerfa

  • Þekking og reynsla af rekstri vélbúnaðar

  • Vilji og geta til að læra nýja hluti

  • Þjónustulund og góð samskiptahæfni

  • Þolinmæði og yfirvegun

  • Þekking og reynsla af uppsetningu og rekstri Linux

  • Þekking og reynsla af vöktunarkerfum

  • Skipulögð og öguð vinnubrögð

  • Þekking á skriftunarmálum er kostur

  • Háskólapróf í tölvunarfræði, kerfisfræðimenntun eða önnur sambærileg menntun er kostur

Hvað bjóðum við upp á?

  • Krefjandi og spennandi verkefni

  • Vinnu í samfélagslega mikilvægu hlutverki

  • Skemmtilegt samstarfsfólk

  • Gott mötuneyti

  • Íþróttastyrk

  • Samgöngustyrk

  • Sveigjanlegan vinnutíma

  • Mögueika á fjarvinnu að hluta

  • Hjólageymslu og bílastæði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Um er að ræða fullt starf. Mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru skv. gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda í starfið ásamt sakarvottorði.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.

Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út.

Allir sem telja sig hæfa í starfið eru hvattir til að sækja um óháð kyni og uppruna. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Hagstofu Íslands við ráðningar í störf.

Hagstofa Íslands er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar á Íslandi. Hlutverk Hagstofunnar er að vinna hlutlægar hagskýrslur, hafa forystu um samhæfingu hagtalna, stunda rannsóknir og stuðla þannig að upplýstri umræðu og faglegum ákvörðunum. Leiðarljós starfseminnar eru þjónusta, áreiðanleiki og framsækni. Hagstofan er staðsett í lifandi umhverfi í Borgartúninu, starfsumhverfið er jákvætt, fjölskylduvænt og sveigjanlegt, öflugt og virkt starfsmannafélag. Nánari upplýsingar má finna á www.hagstofa.is.

Advertisement published26. June 2025
Application deadline7. July 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Borgartún 21A, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.LinuxPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Windows
Work environment
Professions
Job Tags