Sýn
Sýn
Sýn

Tæknimaður á stjórnborði/NOC

Við hjá Sýn erum að leita að tæknimanni á stjórnborðið okkar sem er tæknilegasta skrifstofa fyrirtækisins. Stjórnborðið gegnir mikilvægu hlutverki í að vakta tækni-innviði Sýnar ásamt kerfum frá öðrum aðilum.

Helstu hlutverk tæknimanns eru að vakta eftirlitskerfi, fylgjast með fjarskiptum í innsta hring og bregðast við uppákomum sem fela í sér að kalla út viðbragðsaðila (bakvaktir). Starfið er því mjög fjölbreytt og snertir á mörgum tæknilausnum. Á stjórnborðinu er unnið eftir vaktafyrirkomulagi sem rúllar á 5 vikum og inniheldur 7 dagvaktir, 4 kvöldvaktir, 7 næturvaktir og 17 vakta frídaga.

Helstu verkefni:

  • Vakta eftirlitskerfi, bregðast við atvikum og kalla út viðbragðsaðila bakvaktir).
  • Skrá atvik og senda tilkynningar til viðskiptavina.
  • Samskipti við tæknimenn og aðra hagsmunaaðila.
  • Leggja til umbótaverkefni í kjölfar atvika.

Hæfniskröfur:

  • Nákvæmni, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
  • Tækniþekking
  • Geta fylgja skilgreindum ferlum
  • Gott talnalæsi
  • Góð samskiptahæfni og góð þjónustulund
  • Metnaður til að gera sífellt betur við að þjónusta viðskiptavini stjórnborðs.
  • Þekking á hugbúnaðar, net og fjarskiptalausnum er kostur

Nýir starfsmenn fá ítarlega grunnþjálfun áður en þeir hefja störf á stjórnborði.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til 6. júlí nk. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um. Nánari upplýsingar um starfið veitir mannauðsdeild á [email protected].

Hver erum við?

Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.

Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Advertisement published26. June 2025
Application deadline6. July 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Tech-savvyPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.Customer service
Professions
Job Tags