Snælandsskóli
Snælandsskóli
Snælandsskóli

Kennari í valgreinar og þemavinnu óskast í Snælandsskóla

Snælandsskóli er heildstæður um 450 nemenda grunnskóli staðsettur í Fossvogsdal. Skólinn byggir á langri hefð fyrir framsæknu og árangursríku skólastarfi þar sem áhersla hefur verið lögð á þátttöku í margs konar þróunar- og nýbreytniverkefnum í gegnum tíðina. Skólinn er Grænfána skóli í samvinnu við Landvernd, skólinn styðst við Olweusaráætlunina gegn einelti og þá er skólinn líka Réttindaskóli Unicef.

Einkunnarorð skólans eru: Viska – virðing – víðsýni – vinsemd.

Starfssvið og helstu verkefni

Snælandsskóli leitar eftir kennurum til að koma inn í valgreinakennslu á unglingastigi og þemavinnu á miðstigi m.a. kennslustundir þar sem áhersla er á íþróttir, hreyfingu og útiveru. Tímar sem um ræðir eru kenndir eftir kl. 11:30 mánudaga til fimmtudaga.

Um er að ræða stundakennslu eða hlutastarf og gæti því hentað kennaranemum sem vilja fá reynslu í starfi samhliða eigin námi.

Menntunar- og hæfniskröfur

Grunnskólakennari.

Kennslureynsla og/eða reynsla af starfi með börnum og unglingum er æskileg.

Þolinmæði og framúrskarandi hæfni í samskiptum.

Viðkomandi þarf að vera skipulagður, sýna sjálfstæði og frumkvæði í starfi.

Stundvísi og áreiðanleiki er skilyrði.

Áhugi á að vinna með fjölbreytta nemendahópa.

Umsækjandi þarf að vera tilbúinn að vinna eftir stefnu skólans.

Góð færni í íslensku er nauðsynleg.

Ráðningartími og starfshlutfall

Ráðið verður í stöðuna út skólaárið og viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Aðrar upplýsingar

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Bent er á að samkvæmt lögum verða umsækjendur að skila inn sakavottorði.

Tekið verður mið af jafnréttisstefnu Kópavogsbæjar við ráðningu í starfið.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynjar M. Ólafsson skólastjóri í síma 860-3526 eða netfangið [email protected].

Tekið er á móti starfsumsóknum í gegnum ráðningarvefinn alfred.is.

Fríðindi í starfi

Starfsfólk hjá Kópavpgsbæ fær frítt í sundlaugar Kópavogs.

Advertisement published19. August 2025
Application deadline1. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Víðigrund
Type of work
Suitable for
Professions
Job Tags