Fossvogsskóli
Fossvogsskóli
Fossvogsskóli

Kennari í Fossvogsskóla

Fossvogsskóli er hverfisskóli staðsettur í Fossvogsdalnum þar sem eru greiðar göngu- og hjólaleiðir í ein fallegustu útivistarsvæði borgarinnar; Elliðaárdalinn og Nauthólsvíkina. Nemendafjöldi er um 380 í 1. – 7. bekk og starfsmenn eru rúmlega 60.

Fossvogsskóli hefur á að skipa öflugu starfsfólki. Hann er þátttakandi í Grænfánaverkefni Landverndar og verkefni um Heilsueflandi grunnskóla og vinnustaðar. Í skólanum er unnið með Byrjendalæsi og byggt er á teymiskennslu og samvinnu kennara. Fossvogsskóli vinnur í anda Uppeldis til ábyrgðar og áhersla er á verk- og listgreinar, útivist og fjölbreytt og sveigjanlegt skólastarf. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og góðri fagþekkingu á skólastarfi og er tilbúinn til þess að taka þátt í skólaþróun.

Gildi skólans eru vinátta - virðing - vellíðan.

Nánari upplýsingar um starfið veitir María Helen Eiðsdóttir skólastjóri í síma 411-7570/6977733.

Starfið er laust í 100% starfshlutfall. Launakjör eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ. Umsóknarfrestur er til að með 13. nóvember nk.

Umsókn skal fylgja ferilskrá um menntun og fyrri störf og kynningarbréf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipuleggur nám, kennslu og námsmat nemenda samkvæmt markmiðum og námskrá
  • Sinnir daglegu fagstarfi og kennslu barna á sínu skólastigi
  • Vinnur að skólaþróun og uppbyggingu skólasamfélagsins ásamt samstarfsfólki
  • Stuðlar að velferð nemenda og samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Tekur þátt í teymisvinnu
  • Starfar samkvæmt stefnu skólans
  • Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu
  • Sérhæfing eða reynsla af kennslu á yngsta eða miðstigi
  • Áhugi á skólaþróun
  • Reynsla af foreldrastarfi
  • Sjálfstæði, sveigjanleiki, frumkvæði, faglegur metnaður og góð samskiptahæfni
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði, bæði í ræðu og riti
  • Góð tölvukunnátta
  • Reynsla af teymisvinnu í grunnskóla
  • Hreint sakarvottorð
Advertisement published30. October 2026
Application deadline13. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Haðaland 26, 108 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags