

Grunnskólinn í Borgarnesi - kennarar óskast til starfa út skólaárið 2026-2027
Grunnskólinn í Borgarnesi auglýsir eftir kennurum í heimilisfræði og kennslu nemenda með annað tungumál út skólaárið 2026-2027.
Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður grunnskóli með um 340 nemendur og um 70 starfsmenn. Góður starfsandi, samheldni og jákvæð samskipti einkenna starfsmannahópinn og er vellíðan nemenda og starfsfólks ávallt höfð að leiðarljósi.
Skólinn vinnur eftir stefnu Uppeldis til ábyrgðar þar sem áhersla er lögð á velferð nemenda. Lögð er áhersla á skapandi skólastarf og samvinnu kennara og nemenda. Grunnskólinn í Borgarnesi er teymiskennsluskóli og síðastliðið vor lauk innleiðingarferli skólans á leiðsagnarnámi.
Staða heimilisfræðikennara er 80 - 100% og staða kennara fyrir nemendur með annað tungumál er 50%.
Gildi skólans eru sjálfstæði, ábyrgð, virðing og samhugur.
- Skipulag náms og kennsla nemenda
- Vinna að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Stuðla að velferð og öryggi nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Teymisvinna
- Vinna samkvæmt stefnu og gildum skólans
- Foreldrasamskipti og samvinna heimilis og skóla
- Leyfisbréf grunnskólakennara
- Einlægur áhugi á að vinna með börnum
- Áhugi á teymiskennslu og þverfaglegu samstarfi
- Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
- Þekking og hæfileikar til að vinna að framsæknu skólastarfi
- Jákvæðni og faglegur metnaður
- Stundvísi og samviskusemi
- Mjög góð íslenskukunnátta
- Afsláttur af árskorti í íþróttamiðstöðvar Borgarbyggðar
- Afsláttur hjá Símanum
- Afsláttur á bókasafninu
Íslenska










