Kópasteinn
Kópasteinn
Kópasteinn

Deildarstjóri óskast á Kópastein

Óskað er eftir deildarstjóra í tímabundið starf starf á elstu deild.

Leikskólinn Kópasteini er fimm deilda leikskóli í tveimur húsum með 98 börn á aldrinum 1-5 ára á aldursskiptum deildum. Skólinn opnar kl. 7:30 og lokar kl. 16.30. Í starfinu er lögð áhersla á sjálfssprottinn leik í allri sinni fjölbreytni, lífsleikni, tónlist og málrækt.

Börnin fara í vinnustundir í tónlist, skapandi starfi, málrækt og fleira. Í sjálfssprottna leiknum er notað valkerfi en þá er fjölbreyttur efniviður í boði í frjálsum leiktíma barnanna. Samverustundir eru daglega inni á öllum deildum. Þar er lesið og sungið og hin ýmsu mál rædd í barnahópnum.

Við skólann starfar reynslumikill hópur kennara og starfsfólks sem leggur áherslu á að gera góðan skóla betri alla daga. Gaman saman eru einkunnarorð skólans og endurspeglar það daglegt starf.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi og starfað út desember 2027.

Heimasíða Kópasteins

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni.
  • Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
  • Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
  • Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn og umönnun eftir þörfum.
  • Skipuleggur samvinnu við foreldra barnanna á deildinni t.d. aðlögun, dagleg samskipti og foreldraviðtöl.
  • Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barnannna og stjórnun deildarinnar sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennararmenntun og leyfisbréf kennara.
  • Reynsla af vinnu með börnum.
  • Reynsla af stjórnun æskileg.
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi.
  • Ábyrgur og jákvæður einstaklingur sem á auðvelt með mannleg samskipti.
  • Góð íslenskukunátta.
Advertisement published27. October 2026
Application deadline10. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hábraut 1, 200 Kópavogur
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags