Hagaskóli
Hagaskóli

ÍSAT kennari í Hagaskóla

Laus er til umsóknar starf kennara í íslensku sem öðru tungumáli við Hagaskóla skólaárið 2026–2027. Um er að ræða 100% stöðu.

Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með rúmlega 600 nemendur í 8. – 10. bekk. Í Hagaskóla er lögð áhersla á jákvæðan skólabrag, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, skapandi verkefni og innleiðingu á Menntastefnu Reykjavíkurborgar. Skólinn hefur tekið þátt í fjölbreyttum þróunarverkefnum á liðnum árum.

Umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf og leyfisbréf fyrir kennslu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast kennslu nemenda sem eru af erlendum uppruna.
  • Aðlaga nám og námsumhverfi fyrir nemendur sem eru af erlendum uppruna.
  • Stuðla að velferð nemenda og veita þeim aðgang að fjölbreyttu námi.
  • Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og öðru samstarfsfólki.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf kennara.
  • Góð samskiptafærni og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður, frumkvæði í starfi og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með unglingum.
  • Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Sundkort
Advertisement published26. March 2026
Application deadline7. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Fornhagi 1 Hagaskóli , 107 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags