
Hagaskóli
Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með rúmlega 600 nemendur í 8. til 10. bekk og um 80 starfsmenn þar sem lögð er áhersla á jákvæðan skólabrag, skapandi verkefni og leiðsagnarnám.
Náms- og starfsráðgjafi í Hagaskóla
Laus er til umsóknar staða náms- og starfsráðgjafa við Hagaskóla skólaárið 2026–2027. Um er að ræða 100% stöðu.
Náms- og starfsráðgjafi vinnur í öflugu teymi fagaðila í nemendaþjónustu skólans. Hagaskóli er safnskóli í Vesturbæ Reykjavíkur með rúmlega 600 nemendur í 8. – 10. bekk. Í Hagaskóla er lögð áhersla á jákvæðan skólabrag, fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, skapandi verkefni og innleiðingu á Menntastefnu Reykjavíkurborgar. Skólinn hefur tekið þátt í fjölbreyttum þróunarverkefnum á liðnum árum.
Umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og fyrri störf og leyfisbréf sem náms- og starfsráðgjafi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veitir ráðgjöf varðandi nám, námstækni og námsvenjur.
- Veitir persónulega ráðgjöf og stuðning í málefnum sem snerta líðan nemenda í skóla.
- Veitir ráðgjöf varðandi náms- og starfsval.
- Aðstoðar kennara í nemendamálum eftir óskum.
- Heldur utan um skimanir og/eða kannanir varðandi einelti og líðan nemenda, þ.m.t. tengslakannanir.
- Býður upp á hópráðgjöf, fræðslu eða námskeið sem styrkja einstaklinginn í námi, efla sjálftraustið og/eða samskipti hans.
- Veitir nemendum og foreldrum þeirra upplýsingar um framhaldsnám.
- Aðstoðar nemendur með sérþarfir í samráði við aðra fagaðila, t. d. varðandi starfskynningar og/eða atvinnuþátttöku samhliða skóla.
- Situr nemendaverndarráðsfundi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í náms- og starfsráðgjöf
- Leyfisbréf sem náms- og starfsráðgjafi.
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki.
- Frumkvæði og metnaður.
- Skipulagshæfni og nákvæmni í vinnubrögðum.
- Íslenskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Góð almenn tölvukunnátta.
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngustyrkur
- Sundkort
Advertisement published26. March 2026
Application deadline7. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Fornhagi 1 Hagaskóli , 107 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags

