Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili

Iðnmenntaður starfsmaður í eignaumsýslu

Óskað er eftir öflugum starfsmanni í eignumsýslu hjúkrunarheimilanna Eirar, Skjóls og Hamra. Starfið felur í sér að sinna ýmsum beiðnum sem viðkemur viðhaldi og daglegum rekstri stofnunarinnar. Mikið af fjölbreyttum verkefnum í lifandi byggingum Eirar og tengdum félögum.

Starfshlutfall er eftir samkomulagi.

Staðan er laus frá og með 1. október 2025 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir ýmsum verkbeiðnum sem viðkemur viðhaldi og daglegum rekstri.
  • Umhirða, umsjón og almennt viðhald eigna, bílastæða og lóða.
  • Fjarlægir rusl og lín af deildum.
  • Matarsendingar.
  • Sendast með sýni til rannsóknar.
  • Sendast eftir vörum til viðhalds og fleira.
  • Sinnir öðrum sérverkefnum sem næsti yfirmaður eða stjórnandi felur honum og eðlilegt getur talist að rúmist innan verksviðs hans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi og/eða mikil reynsla af viðhaldi eigna
  • Góð íslenskukunnátta
  • Jákvæðni, greiningarhæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Stundvísi
  • Bílpróf
  • Hreint sakavottorð skilyrði
Boðið er upp á
  • Skemmtileg, fjölbreytt og krefjandi verkefni
  • 36 stunda vinnuviku.
  • Íþróttastyrkur og öflugt starfsmannafélag.
Umsóknarfrestur

Umsóknarfrestur er til og með 21.september 2025. Við hvetjum öll áhugasöm sem uppfylla ofangreindar hæfnikröfur til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Kristinn Árnason, Deildarstjóri eignaumsýslu, í síma 522-5789 eða [email protected]

Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili hafa hlotið jafnlaunavottun í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85.

Advertisement published12. September 2025
Application deadline21. September 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hlíðarhús 7, 112 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Building skillsPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Driver's licencePathCreated with Sketch.ConscientiousPathCreated with Sketch.CarpenterPathCreated with Sketch.PunctualPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Journeyman license
Work environment
Professions
Job Tags