Bakkinn Vöruhótel
Bakkinn Vöruhótel
Bakkinn Vöruhótel

Hópstjóri

Bakkinn Vöruhótel leitar að drífandi og ábyrgum einstaklingi í starf hópstjóra.

Starfið felur í sér að leiða teymi í daglegri vinnu, tryggja að verkefni séu skipulega unnin og stuðla að jákvæðu og öruggu vinnuumhverfi. Hópstjóri tekur þátt í daglegum verkefnum og veitir starfsfólki stuðning og þjálfun.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Leiða teymi í daglegri vinnu og tryggja skilvirka verkefnastýringu.
  • Veita starfsfólki stuðning og þjálfun í samráði við svæðisstjóra.
  • Stuðla að jákvæðu og uppbyggilegu vinnuumhverfi.
  • Tryggja að öryggismál séu í samræmi við stefnu fyrirtækisins.
  • Taka þátt í daglegum fundum og verkefnum.

Hæfniskröfur:

  • Leiðtogahæfni og góð samskiptahæfni.
  • Góður skilningur á íslensku eða ensku sem tryggir skilvirk samskipti.
  • Skipulagshæfni og geta til að vinna undir álagi.
  • Reynsla sem nýtist í starfi er kostur.

Fríðindi í starfi:

  • Aðgangur að velferðarþjónustu Bakkans.
  • Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, Elko og Lyfju.
  • Styrkur til heilsueflingar.
  • Niðurgreiddur hádegismatur.

Næsti yfirmaður hópstjóra er svæðisstjóri.

Um Bakkann Vöruhótel:

Bakkinn er stoðfélag innan Festi samstæðunar og veitir rekstrarfélögum Festi þjónustu með vöruhýsingu og dreifingu. Bakkinn rekur tvö vel útbúin vöruhús í Klettagörðum 13 og Skarfagörðum 2 og leggur áherslu á að skapa öruggt og hvetjandi vinnuumhverfi fyrir alla starfsmenn.

Umsóknarfrestur:

Umsóknafrestur er til og með 20. janúar 2025.

Hvetjum alla áhugasama sem uppfylla ofangreindar kröfur til að sækja um starfið.

Nánari upplýsingar veitir Sveinn Ingvi Einarsson, forstöðumaður reksturs og þjónustu, sveinn@bakkinn.is

Bakkinn Vöruhótel starfrækir vottað jafnlaunakerfi og skuldbindur sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.

Advertisement published10. January 2025
Application deadline20. January 2025
Language skills
No specific language requirements
Location
Skarfagarðar 2, 104 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Leadership
Professions
Job Tags