
Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.

Hofsstaðaskóli - ÍSAT kennari
Hofsstaðaskóli auglýsir eftir kennara til að kenna íslensku sem annað tungumál. Í skólanum verða um 500 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 95 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsmönnum og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.
Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda Menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt aðalnámskrá
- Kennsla og skipulagning á námi nemenda með íslensku sem annað tungumál
- Vinna að gerð einstaklingsnámskrár, áætlanagerð, aðlögun námsefnis og mati á námi nemenda með annað tungumál í samvinnu við kennara og stoðþjónustu skólans
- Leiða teymisvinnu með umsjónarkennurum og stoðþjónustu
- Veita ráðgjöf til kennara og foreldra varðandi nám, kennslu og leiðir
- Vinna að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)*
- Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
- Menntun í sérkennslufræðum með áherslu á ÍSAT æskileg
- Íslenskukunnátta á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Reynsla af kennslu í grunnskóla
- Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum
- Faglegur metnaður, frumkvæði og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
- Ánægja af starfi með börnum og ungmennum
- Reynsla af Leiðsagnarnámi er æskileg
*Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019.
Fríðindi í starfi
- Heilsuræktarstyrkur fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
- Bókasafnskort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Menningarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
- Sundlaugarkort fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall eftir 3 mánuði í starfi
Advertisement published31. March 2026
Application deadline16. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Skólabraut 5, 210 Garðabær
Type of work
Skills
PositivityIndependencePlanningPunctual
Professions
Job Tags
Other jobs (8)

Sjálandsskóli - náms- og starfsráðgjafi
Garðabær

Hofsstaðaskóli - umsjónarkennari á yngra stigi
Garðabær

Mánahvoll - deildarstjóri
Garðabær

Mánahvoll - leikskólakennari
Garðabær

Kirkjuból - leikskólakennari
Garðabær

Álftanesskóli - tónmenntakennari
Garðabær

5 ára deild Sjálandsskóla - sérkennslustjóri
Garðabær

Álftanesskóli - umsjónakennarar á miðstig
Garðabær
Similar jobs (12)

Leikskólakennarar fyrir næsta skólaár
Leikskólinn Sumarhús

Laus kennarastaða á unglingastigi við Brekkubæjarskóla
Brekkubæjarskóli

Heimilisfræðikennari í Hagaskóli
Hagaskóli

Deildarstjóri stoðþjónustu - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennarar á yngra stigi frá 1. ágúst 2026
Fellaskóli

Klettaskóli - Kennari / þroskaþjálfi
Klettaskóli

Deildarstjóri á yngsta stigi - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðardeildarstjóri tómstundamiðstöðvar - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri á deild yngstu barna
Núpur

Leikskólakennari óskast í leikskólann Núp
Núpur

Forfallakennari í Álfhólsskóla 2026-2027
Álfhólsskóli