

Hlutastarf í BYKO Breidd
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til að starfa í hlutastarfi í verslun okkar Byko Breidd. Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Starfið hentar mjög vel með skóla og kjörið fyrir þau sem eru að læra iðngreinar.
Vinnutími er breytilegur og samanstendur af síðdegisvöktum á virkum dögum og aðra hverja helgi. Vaktir eru almennt á eftirfarandi tímum:
- Virkir dagar: 16:00-18:30
- Laugardagar: 10:00-18:00
- Sunnudagar: 11:00-17:00
Við leitum að starfsmanni með:
- Áhuga á sölu- og þjónustu
- Ríka þjónustulund
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Stundvísi
- Þekkingu á gólfefnum, hreinlætistækjum, rafmagni og/eða ljósum, kostur
- Íslenskukunnáttu, skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Þjónusta, sala og ráðgjöf til viðskiptavina
- Áfyllingar
- Birgðaleiðréttingar
- Önnur tilfallandi verkefni
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Icelandic










