

Tækniþjónusta ELKO Skeifunni-Helgarstarf
Við leitum að einstaklingi í helgarstarf í tækniþjónustu ELKO í Skeifunni.
Viðkomandi þarf að geta sýnt frumkvæði, tekist á við krefjandi verkefni og hugsað í lausnum.
Starfið hentar fólki með mikinn áhuga á tækni, þjónustu og samskiptum.
Hlutverk og ábyrgðStarfið felur í sér uppsetningu, bilanagreiningar, ástandsskoðanir, almenna afgreiðslu- og þjónustustörf við tækniþjónustu ELKO í Skeifunni.
Vinnutími
Um helgarstarf er að ræða og unnið er laugardaga og sunnudaga, aðra hverja helgi, samkvæmt vaktaplani sem liggur fyrir mánuð fram í tímann.
Hæfniskröfur:
- Góð almenn tölvu- og tæknikunnátta æskileg
- Kunnátta á uppsetningu og bilanagreiningu á fartölvum, spjaldtölvum og farsímum kostur
- Góð samskiptahæfni
- Sé hugmyndaríkur, kraftmikill einstaklingur sem getur unnið sjálfstætt
- Sýni frumkvæði í starfi og geti tekist á við krefjandi verkefni með bros á vör
- Hafi hreint sakavottorð
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
ELKO leggur mikið upp úr góðum starfsanda. Tekið er vel á móti nýju starfsfólki þar sem það fær tilskylda þjálfun til þess að geta sinnt krefjandi og skemmtilegum verkefnum sem koma upp í daglegu starfi og þjónustu við viðskiptavini.
Fríðindi í starfi
- Styrkur til heilsueflingar
- Afsláttarkjör hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1
- Aðgangur að velferðapakka ELKO
- Aðgangur að fræðslupakka ELKO og Akademias
Frekari upplýsingar veitir Magnús T. Magnússon verslunarstjóri, [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 16.ágúst.
Icelandic










