

Sölumaður í verslun - Dressmann Akureyri
Sölumaður óskast í hlutastarf Dressmann á Akureyri
Vinnutími er:
- Föstudaga 16:00-18:00
- Laugardaga frá 10:00-16:00, 11:00-17:00 eða 13:00-17:00
- Sunnudaga frá 12:00-17:00
- Með möguleika á aukavöktum.
Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt þar sem megináhersla er lögð á framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini og að skapa jákvæða verslunarupplifun. Verkefnin fela meðal annars í sér sölu, ráðgjöf, vöruframsetningu, áfyllingar og að tryggja að verslunin sé ávallt snyrtileg og vel upp sett.
Unnið er í öflugum og samheldnum hópi þar sem allir vinna saman að sameiginlegu markmiði og leggja sitt af mörkum til góðs starfsanda og árangurs.
Hjá Dressmann er boðið upp á sölubónus sem byggir á árangri, þannig að metnaður fyrir sölu, frumkvæði og góð þjónusta skipta miklu máli.
Umsækjendur þurfa að vera a.m.k. 18 ára.
Starfsmaður þarf að:
- Vera stundvís og áreiðanlegur.
- Vera jákvæður og hafa gott viðmót.
- Vera kurteis og þjónustulundaður.
- Vera snyrtilegur og vel til hafður.
- Búa yfir framúrskarandi þjónustulund.
- Geta unnið sjálfstætt og sýnt góð vinnubrögð.
- Hafa metnað til að skila góðu starfi.
- Hafa hreint sakavottorð.
- Hafa góða íslenskukunnáttu.
Icelandic language skills are required.
Laun eru greidd samkvæmt gildandi kjarasamningi VR.
Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast.
- Veita framúrskarandi þjónustu og faglega ráðgjöf til viðskiptavina.
- Ná sölumarkmiðum og leggja virkan þátt í góðum rekstrarárangri.
- Sjá um vöruframsetningu og tryggja að verslunin sé snyrtileg og aðlaðandi.
- Fylla á vörur og halda góðri yfirsýn yfir lager og birgðir.
- Taka þátt í stuðla að jákvæðum starfsanda.
- Koma auga á sölutækifæri og vinna markvisst með viðbótar- og krosssölu.
- Leita stöðugt leiða til að bæta upplifun viðskiptavina.
- Sölubónus sem byggir á árangri.
- Mánaðarleg verðlaun og sameiginlegur kvöldverður fyrir sigurverslun.
- Veglegur starfsmannaafsláttur.
Icelandic
English










