Reykjalundur
Reykjalundur
Reykjalundur

Hjúkrunarfræðingur á meðferðarsvið 1

Laus er til umsóknar 80 - 100% staða hjúkrunarfræðings á meðferðarsvdið 1 á Reykjalundi. Á M1 starfa gigtarteymi, verkjateymi og geðheilsuteymi. Um dagvinnustarf er að ræða og ekki er unnið á rauðum dögum og um helgar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Á Reykjalundi starfar hópur framúrskarandi hjúkrunarfræðinga í átta þverfaglegum meðferðarteymum þar sem áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn. Í þverfaglegum teymum á Reykjalundi starfa auk hjúkrunarfræðinga, félagsráðgjafar, sálfræðingar, iðjuþjálfar, sjúkraþjálfarar, næringarfræðingar, íþróttafræðingar, talmeinafræðingar, sjúkraliðar og læknar.

Mötuneyti er á staðnum og aðgengi starfsfólks að heilsurækt, starfsmannaleikfimi og sundlaug.

Hæfnikröfur:

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi gefið út af embætti landlæknis.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlergum sakmskiptum og jákvætt viðmót.
  • Þekking af endurhæfingarhjúkrun er kostur.
  • Þekking af geðhjúkrun er kostur.
  • Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu og samstarfi.
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.

Laun byggja á kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu auk stofnanasamnings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Reykjalundar.

Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað.

Upplýsingar um starfið veita Erna Bjargey Jóhannsdóttir erna.bjargey@reykjalundur.is og Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri gudbjorg@reykjalundur.is

Advertisement published9. January 2025
Application deadline23. January 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Reykjalundur 125400, 270 Mosfellsbær
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags