Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon
Laugarás Lagoon

Gestgjafi þjónustu og upplifunar/Guest experience host - Helgarvinna/weekend shifts

Við leitum að drífandi, ábyrgu og jákvæðu helgarstarfsfólki í hlutverk gestgjafa þjónustu og upplifunar í Laugarás Lagoon sem opnaði nýverið.

Í þessari fjölbreyttu og mikilvægu stöðu tekur þú á móti gestum bæði í baðlóni og á veitingastaðnum Ylju, sem staðsettur er við baðsvæðið. Þú berð ábyrgð á því að gestir upplifi hlýju, fagmennsku og samfellda þjónustu – hvort sem þeir eru á á baðsvæðinu eða njóta góðrar máltíðar.

Sem gestgjafi þjónustu og upplifunar tekur þú virkan þátt í að móta stemningu, þjónustustefnu og teymið sem mun skapa eftirminnilega upplifun fyrir gesti okkar. Unnið er í vaktavinnu um helgar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Taka á móti gestum af hlýju og fagmennsku hvort sem er við komu á baðstaðinn eða inná Ylju veitingastað.
  • Veita gestum upplýsingar eins og þarf hverju sinni
  • Tryggja að gestir fái framúrskarandi þjónustu og persónulega upplifun
  • Styðja við önnur teymi eftir þörfum
  • Leysa úr fyrirspurnum, koma til móts við óskir og bregðast fljótt við vandamálum
  • Halda utan um gæðaviðmið og skrá athugasemdir eða ábendingar frá gestum
  • Tryggja að umhverfið sé aðlaðandi, hreint og vel skipulagt
  • Starfa eftir gildandi verklagsreglum, öryggiskröfum og þjónustustefnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla úr þjónustugeiranum (t.d. þjónn, móttaka, baðstaður, hótel) er kostur
  • Almenn tölvukunnátta.  
  • Reynsla að vinna með bókunar- eða sölukerfum er kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta (önnur tungumál kostur)
  • Frábær þjónustulund, hlýleg framkoma og samskiptafærni
  • Geta til að vinna sjálfstætt og í teymi
  • Skipulögð og lausnamiðuð hugsun
  • Sveigjanleiki til að vinna kvöld og helgar ef þarf
Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að taka þátt í að skapa glænýjan vinnustað í einstöku umhverfi á Suðurlandi
  • Við getum boðið upp á húsnæði í nálægð við vinnustaðinn
  • Tækifæri til starfsþróunar
  • Líflegt starfsumhverfi innan ferðaþjónustunnar
  • Aðgang að þjónustu fyrirtækisins 
Advertisement published20. October 2025
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Skálholtsvegur 1, 806 Selfoss
Type of work
Suitable for
Professions
Job Tags