Festi
Festi
Festi

Gagnasérfræðingur með áherslu á gagnavísindi og AI

Festi leitar að reyndum gagnasérfræðingi til að taka þátt í að þróa og nýta gagnadrifna innsýn í rekstri og stefnumótun.

Starfið felst í að draga fram gögn og umbreyta framsetningu gagna til að veita stjórnendum samstæðunnar skýra innsýn í rekstur og lausnir sem hafa raunveruleg áhrif á ákvarðanatöku. Gagnateymi Festi vinnur náið með stjórnendum og viðskiptaeiningum að því markmiði að nýta gögn til að greina tækifæri, bæta rekstur og styðja við nýsköpun.

Við leitum að einstaklingi með sterka greiningarhæfni og reynslu af gagnavinnslu og líkanagerð sem hefur áhuga á að vinna í umhverfi þar sem gögn, tækni og viðskipti mætast.

Hlutverk og ábyrgð

  • Þróa og innleiða greiningarlíkön og lausnir sem styðja við stefnumótun og rekstur
  • Greina stór og flókin gagnasöfn til að finna mynstur, spá fyrir um þróun og greina tækifæri
  • Vinna náið með stjórnendum og hagaðilum við að skilgreina greiningarþarfir og nýta niðurstöður í ákvarðanatöku
  • Koma flóknum upplýsingum á framfæri á skýran og hagnýtan hátt
  • Taka þátt í þróun gagnainnviða og mótun gagnadrifinnar menningar
  • Fylgjast með og nýta nýjustu þróun í gagnavísindum og gervigreind

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun í tölfræði, stærðfræði, tölvunarfræði, verkfræði, hagfræði eða tengdum greinum
  • Nokkurra ára reynsla af gagnagreiningu, líkanagerð eða gagnavísindum, helst í viðskipta- eða rekstrartengdu umhverfi
  • Sterk færni í Python eða R
  • Góð þekking á SQL og vinnslu stórra gagnasafna
  • Reynsla af því að vinna með viðskiptaaðilum og miðla niðurstöðum til stjórnenda
  • Hæfni til að tengja tæknilega greiningu við raunveruleg viðskiptaleg áhrif
  • Reynsla af Azure / Microsoft Fabric / Power BI umhverfi kostur
  • Reynsla af spálíkönum og vélrænu námi (ML) kostur
  • Lausnamiðuð og gagnadrifin hugsun
  • Sterk samskiptafærni og geta til að vinna þvert á teymi
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Forvitni og áhugi á að nýta gögn til að skapa virði

Af hverju Festi?

Hjá Festi færðu tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á ákvarðanatöku í einu stærsta smásölufyrirtæki landsins. Þú vinnur náið með stjórnendum og sérð bein áhrif vinnu þinnar í rekstri, stefnumótun og þróun þjónustu. Við bjóðum upp á metnaðarfullt starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á gagnadrifna nálgun, nýsköpun og stöðuga þróun.

Starfsfólki er veittur sveigjanleiki í starfi og lögð er áhersla á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Velferð starfsfólks er í fyrirrúmi og er ýmis konar heilsueflandi þjónusta í boði í velferðarpakka félagsins. Starfsfólk fær góð kjör á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1.

Nánari upplýsingar veitir Gísli Heiðar Bjarnason forstöðumaður viðskiptagreininga og gervigreindar, [email protected].

Advertisement published13. May 2026
Application deadline24. May 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.Data analysisPathCreated with Sketch.Artificial intelligencePathCreated with Sketch.Power BIPathCreated with Sketch.PythonPathCreated with Sketch.SQL
Professions
Job Tags