Lagaviti ehf.
Lagaviti ehf.
Lagaviti ehf.

Gagnasérfræðingur / Data Engineer (gervigreind)

Lagaviti er mjög öflug gervigreindarlausn sem beitir allra nýjustu gervigreindartækni á hverjum tíma – ekki bara cutting edge heldur hreinlega bleeding edge tækni. Þróun lausnarinnar felur í sér fjölmargar tæknilegar áskoranir sem hafa í mörgum tilvikum ekki verið leystar áður, auk þess sem lausnin hefur mjög jákvæð samfélagsleg áhrif.

Vegna áframhaldandi vaxtar leitum við nú að öflugum gagnasérfræðingi (Data Engineer / Data Specialist) til að bætast í gagnateymi okkar. Starfið felst í þróun og sjálfvirknivæðingu gagnavinnslu sem styður við gervigreindarlausnir, gagnagreiningu og þróun gagnamódela.

Við leitum að einstaklingi sem hefur sterkan tæknilegan grunn, hefur gaman af því að vinna með gögn og sjálfvirkni og vill taka þátt í þróun lausna þar sem gervigreind og gagnavinnsla fara hönd í hönd.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróa og viðhalda sjálfvirkum gagnavinnslupípum (ETL/ELT) fyrir söfnun, hreinsun og umbreytingu gagna
  • Þróa lausnir sem sjálfvirknivæða gagnavinnslu með áherslu á áreiðanleika, rekjanleika og endurtekningarhæfni
  • Safna, vinna og umbreyta óskipulögðum gögnum í vel skilgreinda gagnastrúktúra
  • Nýta gervigreindarlausnir til flokkunar, greiningar, merkingar og strúktúrsetningar gagna
  • Sjálfvirknivæða gæðaprófanir, villugreiningu og staðfestingu gagna
  • Undirbúa gögn fyrir gervigreindar-, vélanáms- og spálíkön
  • Samþætta gagnavinnslulausnir við forrit, þjónustur og AI-lausnir
  • Skjalfesta gagnavinnsluflæði, gagnalíkön og sjálfvirk ferli
Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af gagnavinnslu og sjálfvirknivæðingu og hefur áhuga á að vinna með stór og fjölbreytt gagnasöfn.

Æskilegt er að umsækjandi hafi:

  • Góða reynslu af forritun í Python og/eða TypeScript
  • Reynslu af gagnavinnslu, umbreytingu gagna og sjálfvirknivæðingu ferla
  • Reynslu af vinnslu óskipulagðra gagna (unstructured data)
  • Þekkingu á gagnagæðaprófunum og sjálfvirkum prófunum
  • Reynsla af SQL og/eða NoSQL gagnagrunnum
  • Skilning á kröfum gagna fyrir gervigreind, vélanám og gagnamódel
  • Nákvæm vinnubrögð, frumkvæði og góða samvinnuhæfni
Kostur ef umsækjandi hefur:
  • Reynslu af nýtingu gervigreindar, svo sem NLP og LLM, við gagnavinnslu
  • Þekkingu á RAG-lausnum (Retrieval-Augmented Generation) og leitarlausnum fyrir gervigreind
  • Þekkingu á tölfræði, spálíkönum eða gagnagreiningu
  • Reynslu af feature engineering og undirbúningi gagna fyrir módel
  • Reynslu af skýjalausnum (AWS, GCP eða Azure)
  • Áhuga á nýsköpun og þróun gervigreindarlausna
Við bjóðum:
  • Tækifæri til að taka þátt í þróun öflugrar gagnavinnslu sem styður við leiðandi gervigreindarlausn
  • Fjölbreytt verkefni sem spanna gagnavinnslu, sjálfvirkni og gervigreind
  • Tækifæri til að vinna með nýjustu (cutting edge og bleeding edge) gervigreindartækni
  • Samstarf við öflugt og metnaðarfullt þróunarteymi
  • Samkeppnishæf kjör og góða vinnuaðstöðu
  • Sveigjanlegt og nútímalegt starfsumhverfi
Frekari upplýsingar

Frekari upplýsingar um starfið veitir Jóhannes Eiríksson, framkvæmdastjóri ([email protected]). 

Áhugasamir eru hvattir til að senda inn umsókn hið fyrsta, þar sem ráðið verður í starfið óháð umsóknarfresti.

Advertisement published10. July 2026
Application deadline20. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Nýlendugata 14, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AWSPathCreated with Sketch.AzurePathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Data analysisPathCreated with Sketch.Artificial intelligencePathCreated with Sketch.Google CloudPathCreated with Sketch.Database designPathCreated with Sketch.PythonPathCreated with Sketch.SQLPathCreated with Sketch.TypeScript
Professions
Job Tags