Orkuveitan
Orkuveitan
Orkuveitan

Junior hugbúnaðarsérfræðingur

Hugbúnaðarþróun Orkuveitunnar leitar að nýliða í hugbúnaðarþróun sem vill hefja starfsferilinn í öflugu tækniteymi. Hlutverk okkar er að þróa og nútímavæða hugbúnaðarlausnir fyrir Orkuveituna og dótturfélög hennar. Verkefnin snerta mikilvæga innviði samfélagsins og fela meðal annars í sér þróun nýrra lausna, endurhönnun samþættinga, aukna sjálfvirknivæðingu og markvissa notkun gervigreindar í hugbúnaðarþróun.

Engin starfsreynsla er nauðsynleg. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á forritun, traustan grunn úr námi eða sjálfsnámi og vilja til að læra. Ef þú ert manneskjan sem leitar uppi vandamál til að leysa, lærir hratt og hefur gaman af því að skilja hvernig hlutirnir virka, þá viljum við heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun og viðhald á hugbúnaði í samvinnu við reyndari sérfræðinga, vörustjóra og önnur þróunarteymi. 

  • Skrif á prófunum, skjölun og smærri einingum sem hluti af stærri lausnum. 

  • Þátttaka í code reviews, bæði til að fá endurgjöf og læra af kóða annarra. 

  • Aðstoð við greiningu á eldri kerfum og kortlagningu samþættinga. 

  • Nýting AI-verkfæra til að auka framleiðni og læra hraðar. 

  • Þátttaka í Agile vinnulagi: stand-ups, sprint planning og retrospectives. 

Advertisement published1. July 2026
Application deadline3. August 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags