Orkuveitan
Orkuveitan
Orkuveitan

Senior hugbúnaðarsérfræðingur

Hugbúnaðarþróun Orkuveitunnar leitar að reyndum hugbúnaðarsérfræðingi til að taka þátt í mikilvægri tæknilegri umbreytingu Orkuveitunnar. Hlutverk okkar er að þróa og nútímavæða hugbúnaðarlausnir fyrir Orkuveituna og dótturfélög hennar. Verkefnin snerta mikilvæga innviði samfélagsins og fela í sér þróun nýrra lausna, endurhönnun samþættinga, sjálfvirknivæðingu og markvissa notkun gervigreindar.

Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af hugbúnaðarþróun í flóknu umhverfi, getur skapað yfirsýn, greint tækifæri til umbóta og komið traustum lausnum í rekstur.

Ef þú ert manneskjan sem opnar gagnagrunna sem enginn skilur, finnur út hvernig hlutirnir virka, talar við réttu sérfræðingana, skjalfestir og kemur hlutunum áfram, þá viljum við heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Taka þátt í nútímavæðingu samþættingaumhverfis samstæðunnar og uppbyggingu nýrra Domain APIs. 

  • Þróa og innleiða event-driven lausnir þar sem þær eiga við 

  • Stuðla að samræmingu þróunarferla, verkfæra og vinnubragða þvert á Orkuveituna. 

  • Nýta gervigreind til að efla þróun, prófanir, greiningu og skjölun. 

  • Styrkja öryggi, sjálfvirknivæðingu og gæði í hugbúnaðarþróun. 

Advertisement published1. July 2026
Application deadline3. August 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags