
Matfugl
Matfugl er leiðandi matvælaframleiðandi á íslenskum markaði sem sérhæfir sig í afurðum unnum úr kjúklingakjöti. Það er stefna fyrtækisins að ala kjúklinga á mannúðlegan hátt með velferð dýranna að leiðarljósi og um leið hámarka öryggi og gæði afurðanna.
Gæðastjóri - Matvælaframleiðsla (Kjúklingaafurðir)
Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum gæðastjóra til að leiða gæðamál hjá öflugu matvælafyrirtæki sem framleiðir bæði hráar og fulleldaðar kjúklingavörur.
Starfið felur í sér ábyrgð á þróun, innleiðingu og eftirfylgni með gæðakerfum og tryggingu þess að framleiðsla sé ávallt í samræmi við strangar kröfur um matvælaöryggi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón og þróun HACCP gæðakerfis fyrirtækisins.
- Viðhald og áframhaldandi uppbygging á BRC vottun.
- Dagleg eftirfylgni með gæðamálum, innri úttektir og gerð verklagsreglna.
- Þjálfun starfsmanna í gæðakerfum, matvælaöryggi og hreinlætismálum.
- Samskipti við eftirlitsaðila, viðskiptavini og birgja.
- Lausn vandamála og stöðug umbótavinna í framleiðsluferlum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í matvælafræði, dýralækningum eða sambærilegu fagi.
- Reynsla af gæðastjórnun í matvælaframleiðslu er kostur.
- Þekking á HACCP og alþjóðlegum gæðastöðlum, sérstaklega BRC.
- Faglegur metnaður, nákvæmni og góð hæfni í samskiptum og leiðtogastarfi.
- Hæfni til að vinna sjálfstætt, greina flókin mál og taka upplýstar ákvarðanir.
Advertisement published3. March 2026
Application deadline16. March 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Völuteigur 2, 270 Mosfellsbær
Type of work
Skills
Risk analysisDesigning proceduresImplementing proceduresQuality tracking systems
Work environment
Professions
Job Tags





