PK Verk
PK Verk

Gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri

PK Verk óskar eftir að ráða drífandi gæða-, umhverfis- og öryggisstjóra sem leiðir þróun, innleiðingu og eftirfylgni gæða-, umhverfis- og öryggismála. Hlutverkið felur meðal annars í sér að tryggja framúrskarandi gæði framkvæmda og virkt eftirlit í heilsusamlegu vinnuumhverfi og menningu. Gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri mun einnig leiða mannauðstengd verkefni ásamt fræðslu og þjálfun hjá fyrirtækinu.


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Tryggja að farið sé eftir lögum, reglugerðum og stöðlum er varða byggingaframkvæmdir, meðferð og eftirlit með vinnuvélum og tækjum
  • Framkvæma og tryggja reglubundið innra eftirlit með byggingaframkvæmdum og þátttaka í innri og ytri úttektum, þ.m.t. árlegum úttektum á stjórnunarkerfi PK Verks.
  • Stýra öryggismálum í nánu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk
  • Tryggja að rétt sé staðið að gæða- og öryggismálum í undirbúningi verka og á meðan framkvæmdum stendur
  • Framkvæmd áhættugreininga og gerð og eftirfylgni með öryggis- og heilbrigðisáætlunum
  • Ýmis mannauðstengd verkefni
  • Ábyrgð á fræðslu og þjálfun starfsfólks ásamt því að efla öryggis- og gæðamenningu
  • Þátttaka í stefnumótun, umbótaverkefnum og uppfærslu verklagsreglna er snúa að gæða- og öryggismálum


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
  • Reynsla af framkvæmdum og öryggismálum í byggingaframkvæmdum
  • Þekking og reynsla af öryggisstjórnun og mannauðsmálum er kostur
  • Mikil þekking á byggingarreglugerð og öðrum reglum/stöðlum sem gilda um gæði framkvæmda
  • Reynsla af vottuðum stjórnunarkerfum á borð við ISO9001, ISO 14001 eða ISO 45001 er kostur
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði og geta til að hafa yfirsýn yfir fjölbreytt verkefni
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli


Um PK verk:
PK verk ehf. er öflugt verktakafyrirtæki sem var stofnað árið 2001 en á rætur sínar að rekja til ársins 1973. Fyrirtækið annast ýmis verkefni í mannvirkjagerð, vegagerð, veitukerfum og húsbyggingum fyrir opinbera aðila og einstaklinga. Fjöldi starfsmanna yfir árið er breytilegur eftir verkefnastöðu en er um 30 manns.

Fyrirtækið er staðsett að Drangahrauni 7 í Hafnarfirði sem hýsir skrifstofu, bíla, tækja- og járnsmíðaverkstæði.


Umsóknarfrestur er til og með 5. mars 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]).

Advertisement published16. February 2026
Application deadline5. March 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Drangahraun 7, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Construction engineerPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Quality tracking systems
Professions
Job Tags