
Skólamatur
Skólamatur ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á hollum og ferskum mat, elduðum frá grunni fyrir leik- og grunnskóla.
Skólamatur ehf. var stofnað í janúar 2007. Fyrirtækið er í eigu Axels Jónssonar matreiðslumeistara sem hefur áratuga reynslu af alhliða veitingarekstri.
Hjá Skólamat starfa um 200 starfsmenn. Starfsmannavelta fyrirtækisins er lág og starfsaldur hár. Rúmlega helmingur núverandi starfsmanna hefur unnið í 5 ár eða lengur hjá fyrirtækinu.
Skólamatur leggur áherslu á að skapa fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem hæfileikar, þekking og reynsla hvers starfsmanns fær að njóta sín. Við leggjum áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.
Markmið Skólamatar er að ráða, efla og halda hæfu og reynslumiklu starfsfólki.
Gildi Skólamatar eru: Jákvæðni, fjölskylda og virðing.

Gæðastjóri
Skólamatur ehf. óskar eftir að ráða til starfa gæðastjóra sem ber ábyrgð á viðhaldi og þróun á gæðakerfi fyrirtækisins í samstarfi við stjórnendur og annað starfsfólk.
Markmið og verkefni gæðastjóra tengjast gæða og öryggismálum fyrirtækisins. En einnig að tryggja að lögum og reglum er varða gæðamál sé fylgt eftir. Gæðastjóri sér um eftirlit og upplýsingagjöf.
Skólamatur er rótgróið og metnaðarfullt matvælafyrirtæki sem leggur ríka áherslu á gæði, öryggi og stöðugar umbætur.
Starfsstöð er á Iðavöllum 1A í Reykjanesbæ og vinnutíminn er milli 8:00-16:00 alla virka daga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón og ábyrgð á gæðamálum hjá Skólamat ehf.
- Ritstjórn gæðahandbókar
- Innleiðing, þróun og viðhald gæðakerfis og gæðahandbókar
- Framkvæmd innri úttekta og umsjón með umbótaverkefnum
- Umsjón með innihaldslýsingum matvæla
- Samskipti við viðskiptavini og starfsfólk, upplýsingagjöf og eftirfylgni er varðar gæðamál
- Þróun verkferla
- Samskipti við eftirlitsaðila
- Fræðsla og þjálfun til starfsfólks í gæðamálum
- Eftirlit með framleiðslu
- Á sæti í öryggisnefnd
- Skráningu vinnuslysa og eftirfylgni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Matvælafræði, næringarfræði eða sambærileg menntun skilyrði
- Brennandi áhugi á gæðamálum, gæðakerfum og matvælaframleiðslu
- Skipulagshæfni, frumkvæði og færni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af verkefnastjórnun og teymisvinnu kostur
- Gott vald á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi
- Íþróttastyrkur
- Samgöngustyrkur
- Fjölskylduvænn vinnustaður
Advertisement published18. February 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Iðavellir 1, 230 Reykjanesbær
Type of work
Skills
ProactiveImplementing proceduresPositivityHuman relationsPrecisionPlanningQuality tracking systems
Professions
Job Tags
Similar jobs (11)

Við leitum að tveimur lyfsölum í Lyfjuliðið!
Lyfja

Gæða-, umhverfis- og öryggisstjóri
PK Verk

Senior Scientist – Drug Product Development (Material Science)
Alvotech hf

Verkefnastjóri gæðamála
Orkubú Vestfjarða ohf

Housekeeping Manager
Radisson RED Hotel, Reykjavik

Lyfjafræðingur á höfuðborgarsvæðinu
Lyfjaval

Sérfræðingur í matvælaörverufræði
Matís ohf.

GÆÐA- OG MANNAUÐSSTJÓRI
SÁÁ

Lyfjafræðingur - Costco Apótek
Costco Wholesale

Sérfræðingur í gæðastjórnun
KPMG á Íslandi

Lyfjafræðingur
Apótek