

Fullt starf í mötuneyti Ása
Ertu morgunhress og leitar að skemmtilegu starfi? Ásar leita að duglegum og hressum einstaklingi í mötuneyti fyrirtækisins. Starfið felur í sér umsjón með salatbar, aðstoð við matseld ásamt undirbúningi og frágangi í kringum morgun- og hádegisverð. Vinnutíminn er frá 07:00-15:00 alla virka daga. Leitað er að einstaklingi í framtíðarstarf.
- Áhugi á mat og matargerð er mikill kostur
- Góður liðsfélagi með mikla aðlögunarhæfni
- Góðir samskiptahæfileikar
- Framúrskarandi þjónustulund
- Stundvísi og reglusemi
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Aðgengi að velferðarþjónstu Heilsuverndar
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Námsstyrkir
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Gleraugnastyrkur
Ásar eru leiðandi samstæða á sviði stafrænnar þjónustu á Íslandi. Stærstu eignir Ása eru Síminn, Billboard og Greiðslumiðlun Íslands.
Sótt er um starfið á vef Ása. Umsóknarfrestur er til og með 22. nóvember 2026.
Nánari upplýsingar veitir [email protected].
Við metum umsóknir jafnóðum og þær berast og boðum í viðtöl eftir því sem við á. Ráðið verður í starfið þegar við finnum rétta einstaklinginn í hlutverkið.
Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um.
Icelandic










