
Skólamatur
Skólamatur ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á hollum og ferskum mat, elduðum frá grunni fyrir leik- og grunnskóla.
Skólamatur ehf. var stofnað í janúar 2007. Fyrirtækið er í eigu Axels Jónssonar matreiðslumeistara sem hefur áratuga reynslu af alhliða veitingarekstri.
Hjá Skólamat starfa um 200 starfsmenn. Starfsmannavelta fyrirtækisins er lág og starfsaldur hár. Rúmlega helmingur núverandi starfsmanna hefur unnið í 5 ár eða lengur hjá fyrirtækinu.
Skólamatur leggur áherslu á að skapa fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem hæfileikar, þekking og reynsla hvers starfsmanns fær að njóta sín. Við leggjum áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.
Markmið Skólamatar er að ráða, efla og halda hæfu og reynslumiklu starfsfólki.
Gildi Skólamatar eru: Jákvæðni, fjölskylda og virðing.

Framleiðslueldhús í Reykjanesbæ
Skólamatur leitar af öflugum og jákvæðum einstaklingi til að ganga til liðs við teymi fagfólks sem starfar í framleiðslueldhúsi í höfuðstöðvum Skólamatar í Reykjanesbæ.
Vinnutíminn er frá kl: 7:00 til 15:00 alla virka daga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoð við framleiðslu og vinnslu matvæla
- Undirbúningur og eldun á skólamáltíðum fyrir leik- og grunnskóla
- Virk þátttaka í daglegu starfi
- Frágangur og önnur tilfallandi verkefni í eldhúsinu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Áhugi á matargerð og matvælaiðnaði
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hæfni til að vinna í teymi og sýna samvinnu
- Samviskusemi og nákvæmni
- Reynsla úr matvælaframleiðslu er kostur en ekki skilyrði
Fríðindi í starfi
- Vinnufatnaður
- Íþróttastyrkur
- Samgöngustyrkur
- Fjölskylduvænn vinnustaður
Advertisement published9. April 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Iðavellir 1, 230 Reykjanesbær
Type of work
Skills
PositivityPhysical fitnessHuman relationsIndependencePlanningPunctual
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Starfsmaður í mötuneyti (50% sumarstarf)
Sælkeramatur ehf.

Framtíðarstarf við íþróttamiðstöð Seyðisfjarðar í 75% starf
Sundhöll og íþróttamiðstöð Seyðisfirði

Chef de partie (Senior Level)
North West Restaurant & Gueshouse

Aðstoðarverslunarstjóri á Akureyri
Lífland ehf.

Sumarstarf í varahlutaverslun
Þór hf.

Starfskraftur afgreiðslu á Akureyri
Frumherji hf

Spennandi sumarstörf 2026 / Exciting Summer Jobs 2026
Alcoa Fjarðaál

Verslunarstarf í Reykjanesbæ
Penninn Eymundsson

Morgunmatur – Starfsmaður í eldhúsi | Breakfast Attendant (Kitchen & Service)
Exeter Hótel

Matráður við Reykhólaskóla
Reykhólahreppur

Client Experience Specialist
Nordic Luxury

Vélstjóri/keyrslumaður í fóðurframleiðslu
Fóðurblandan