
Sundhöll og íþróttamiðstöð Seyðisfirði
Íþróttamiðstöð Seyðisfjarðar var formlega tekin í notkun 1. febrúar 1999. Í íþróttahúsinu er rúmgóður salur, en þar rúmast t.a.m. löglegur handboltavöllur, 5 badmintonvellir, 2 körfuboltavellir, 3 blakvellir og 5 bocciavellir. Einnig er fullbúinn tækjasalur til líkamsræktar, gufa, kalt kar og heitur pottur í húsinu.
Sundhöll Seyðisfjarðar var byggð árið 1948 og var teiknuð af Guðjóni Samúelssyni húsameistara ríkisins. Hún var formlega opnuð 8. júlí 1948 og varð því 70 ára árið 2018. Sundlaugin er innilaug 12,5 x 7m, lítil en vinaleg, með útipotti, köldu kari og sauna.

Framtíðarstarf við íþróttamiðstöð Seyðisfjarðar í 75% starf
Íþróttamiðstöð Seyðisfjarðar leitar af starfskrafti í 75% starf í vaktavinnu. Um fjölbreytt og skemmtilegt framtíðarstarf er að ræða.
Viðkomandi starfar við ýmis störf í íþróttahúsi, t.d. við móttöku, afgreiðslu, baðvörslu og ræstingu o.fl. Tekur á móti og þjónustar fjölbreyttan hóp viðskiptavina, m.a. nemendur leik- og grunnskóla. Sýna skal frumkvæði í starfi og miðla hugmyndum um úrbætur.
Næsti yfirmaður er forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar á Seyðisfirði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirlit og gæsla með gestum íþróttamiðstöðvar og sundhöll.
- Almenn afgreiðsla.
- Allar almennar ræstingar.
- Fylgist með samskiptum notenda og leysir úr ágreiningi. Vinnur gegn áreitni og ofbeldi s.s. í búningsklefum og vísar erfiðum málum í réttan farveg.
- Önnur verkefni falin af yfirmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af þjónustustörfum æskileg.
- Sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Frumkvæði og drifkraftur.
- Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og góð samstarfshæfni.
- Hreint sakavottorð.
- 18 ára og eldri
- Skyndihjálparkunnátta.
- Viðkomandi þarf að standast námskeið í björgun og skyndihjálp og sundpróf fyrir laugaverði.
Advertisement published13. April 2026
Application deadline27. April 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Austurvegur 4, 710 Seyðisfjörður
Type of work
Skills
ProactiveClean criminal recordPositivityConscientiousIndependenceFirst aidCustomer service
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Starfsfólk í loftstokkahreinsun
Hitatækni ehf

Starfsmaður í mötuneyti (50% sumarstarf)
Sælkeramatur ehf.

Aðstoðarverslunarstjóri á Akureyri
Lífland ehf.

Sumarstarf í varahlutaverslun
Þór hf.

Starfskraftur afgreiðslu á Akureyri
Frumherji hf

Sumarstörf við ræstingar
Hreint ehf

Experienced Housekeepers – Full-time Position
Hótel Dyrhólaey

Verslunarstarf í Reykjanesbæ
Penninn Eymundsson

Skólaliði óskast í Reykhólaskóla
Reykhólahreppur

Housekeeping part time 50% / 80% - SOUTH ICELAND
Panorama Glass Lodge

Client Experience Specialist
Nordic Luxury

Sölumaður Fagsölu - BYKO Akureyri
Byko