Greiðslumiðlun Íslands
Greiðslumiðlun Íslands

Framkvæmdastjóri

Við leitum að framsýnum framkvæmdastjóra til að leiða Greiðslumiðlun Íslands inn í nýtt vaxtarskeið sem hluti af Ásum, vaxandi samstæðu stafrænna þjónustufyrirtækja. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri, stefnumótun og uppbyggingu félagsins, í nánu samstarfi við stjórn og móðurfélagið Ása.

Framundan eru spennandi tækifæri til áframhaldandi vaxtar og þróunar þar sem áhersla verður lögð á tækni, nýsköpun og markvissa nýtingu gervigreindar. Framkvæmdastjóri leiðir öflugt og reynslumikið stjórnendateymi og gegnir lykilhlutverki í að móta sameiginlega framtíðarsýn, setja skýrar áherslur og tryggja árangursríka framkvæmd stefnunnar til að styðja við arðbæran vöxt félagsins. Framkvæmdastjóri er jafnframt andlit félagsins út á við og vinnur náið með stjórnendum systurfélaga innan Ása að sameiginlegum tækifærum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af stjórnun og rekstri í tæknidrifnu umhverfi
  • Reynsla af árangursríkri stefnumótun og umbreytingum
  • Þekking á greiðslumiðlun, útlánastarfsemi eða annarri fjártæknistarfsemi er mikill kostur
  • Reynsla af kaupum og samþættingu fyrirtækja er æskileg
  • Reynsla af því að leiða stjórnendateymi og byggja upp sterka liðsheild
  • Leiðtogahæfni, drifkraftur og lipurð í samskiptum
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Advertisement published27. November 2026
Application deadline8. December 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Katrínartún 4, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags