

Sérfræðingur í vöruþróun og dreifingu | Product & Distribution Lead
Á áfangastöðum okkar sköpum við upplifanir sem fá gesti til að ferðast til Íslands. Sem sérfræðingur í vöruþróun og dreifingu ákveður þú hvernig þessar upplifanir verða að vörum og tryggir að gestir um allan heim geti fundið þær og bókað, og stuðlar þannig að vexti vöruframboðs okkar.
Þú tengir saman þarfir gesta og markaðsinnsýn við viðskiptalegar áherslur, þróar nýjar vörur, viðheldur þeim og tekur úr sölu svo að vöruframboðið skeri sig ávallt úr og sé auðvelt fyrir gesti að kaupa, ásamt því að tryggja rétta uppsetningu og dreifingu á hverri vöru í sölurásunum okkar. Þú verður hluti af vöruþróunar- og dreifingarteyminu, heyrir undir forstöðumann vöruþróunar og dreifingar og vinnur með sérfræðingum þvert á viðskiptasvið, þar á meðal í sölu, markaðsmálum, tekjustýringu og stafrænum lausnum, auk rekstrar og tækni.
Helstu verkefni
Vörur
-
Leiða vörur frá hugmynd og viðskiptaáætlun til markaðssetningar, endurmats og endurnýjunar með innsýn frá gagna- og tekjustýringarteymum okkar.
-
Móta skýra vöruáætlun sem byggist á þörfum gesta, tækifærum á markaði, rekstrarlegri hagkvæmni og fjárhagslegum áhrifum.
Dreifing
-
Setja upp og viðhalda vörum í bókunar- og viðskiptakerfum okkar og tengja þær við beinar sölurásir, ferðaskrifstofur og samstarfsaðila.
-
Tryggja að vörur, verð og framboð séu rétt í öllum sölurásum og vinna með tæknisviði að umbótum.
Samstarf
-
Vinna með sölu, markaðsmálum, tekjustýringu, stafrænum lausnum, rekstri og fjármálum að því að breyta tækifærum í vörur sem gestir vilja kaupa.
-
Skilgreina skýra árangursmælikvarða (KPI) og stýra reglulegu árangursmati á vörum og sölurásum.
-
Byggja upp sterk tengsl við innri teymi og dreifingaraðila og standa jafnframt vörð um vörumerki Bláa Lónsins og upplifun gesta.
Hæfniskröfur
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða sambærileg reynsla á sviði viðskipta, ferðaþjónustu, markaðsmála, stafrænnar verslunar eða skyldra greina.
-
Reynsla af vörustjórnun, viðskiptaþróun, dreifingu, samstarfsverkefnum eða netverslun.
-
Reynsla af uppsetningu og umsjón vara í beinum sölurásum og sölurásum samstarfsaðila og af vinnu í kerfunum sem liggja þar að baki, ásamt ríkri áherslu á nákvæmni og vandvirkni.
-
Gott viðskiptavit og færni í að nýta gögn við ákvarðanatöku.
-
Frumkvæði, skipulögð og lausnamiðuð vinnubrögð og færni í að vinna jafnt að langtímastefnu og daglegri framkvæmd.
-
Framúrskarandi hæfni í samvinnu og samskiptum.
-
Framúrskarandi enskukunnátta; færni í íslensku og öðrum tungumálum er kostur.
-
Reynsla úr ferðaþjónustu, gisti- og veitingaþjónustu, vellíðunargeiranum eða af hágæða vörumerkjum á neytendamarkaði er kostur.
Um er að ræða tímabundið starf til og með 31. desember 2027.
Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veita mannauðssérfræðingar Bláa Lónsins í síma 420 8800.
-----------------------------
Wellbeing done differently.
Across our destinations, we create experiences guests travel to Iceland for. As Product & Distribution Lead, you decide how these experiences come together as products and make sure guests around the world can find and book them, helping our portfolio grow.
You will connect guest needs and market insight with commercial priorities, creating, maintaining and retiring products to keep our portfolio distinctive and easy to buy, while ensuring each product is properly set up and distributed across our channels. You will be part of the Product & Distribution team, report to the Director of Product & Distribution, and work alongside specialists across the commercial team, including Sales, Marketing, Revenue Management and Digital, as well as Operations and Technology.
What you will do
Product
-
Lead products from idea and business case to launch, review and renewal, using insight from our Data and Revenue Management teams.
-
Build a clear product roadmap based on guest needs, market opportunities, operational feasibility and financial impact.
Distribution
-
Set up and maintain products in our booking and business systems, and connect them to our direct sales channels, travel agencies and partners.
-
Keep products, prices and availability accurate across channels, and work with Technology on improvements.
Collaboration
-
Work with sales, marketing, revenue management, digital, operations and finance to turn opportunities into products that guests want to buy.
-
Define clear KPIs and lead regular performance reviews for products and channels.
-
Build strong relationships with internal teams and distribution partners while protecting the Blue Lagoon brand and guest experience.
What you bring
-
A relevant degree or equivalent experience in business, tourism, marketing, digital commerce or a related field.
-
Experience in product management, commercial development, distribution, partnerships or e-commerce.
-
Experience setting up and managing products across direct and partner distribution channels, and working hands-on in the systems behind them, with a strong focus on accuracy and attention to detail.
-
Strong commercial judgement and confidence in using data to make decisions.
-
A structured, proactive and pragmatic approach, at ease moving between long-term direction and day-to-day execution.
-
Excellent collaboration and communication skills.
-
Excellent English; Icelandic and other languages are an advantage.
-
Experience from tourism, hospitality, wellness or premium consumer brands is a plus.
This is a fixed-term position ending on 31 December 2027.
The application deadline is 30 November 2026.
For further information about the position, please contact Blue Lagoon’s Human Resources specialists at +354 420 8800.
English
Icelandic




