Eignaumsjón
Eignaumsjón
Eignaumsjón

Framkvæmdastjóri


Eignaumsjón hf. er leiðandi þjónustufyrirtæki á íslenskum fasteignamarkaði og sérhæfir sig í rekstrarumsjón fyrir húsfélög og rekstrarfélög fasteigna. Félagið hefur starfað í 25 ár og annast fjárreiður og rekstur um 1.350 viðskiptavina sem ná til rúmlega 32 þúsund fasteigna. Fyrirtækið hefur hlotið fjölda viðurkenninga, þar á meðal sem framúrskarandi fyrirtæki og fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri.

Þróttmikill vöxtur hefur verið í starfsemi Eignaumsjónar undanfarin ár og er fjárhagsleg
staða fyrirtækisins traust. Markmið félagsins eru metnaðarfull, m.a. að nýta þekkingu á
fasteignum og þörfum viðskiptavina til nýsköpunar og þróunar á þjónustu félagsins þar sem upplýsingatækni og sjálfvirkni verði vaxandi hluti þjónustu við viðskiptavini.

Hjá Eignaumsjón starfa 65 manns á fjórum meginsviðum og til viðbótar nýtur félagið þjónustu fjölda skráðra fagaðila og verktaka.

Hlutverk og ábyrgð
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á rekstri og þjónustu félagsins. Meginverkefni þjónustunnar felast í umsjón með fjármálum og bókhaldi viðskiptavina, ráðgjöf og útvegun þjónustu, fundarþjónustu, leiguumsjón, húsumsjón og rekstri ýmissa kerfa húsfélaga.

Framkvæmdastjóri vinnur að áframhaldandi vexti og þróun félagsins, bæði með því að efla og dýpka þjónustu við núverandi viðskiptavini, sem og með virkri sölu- og markaðsvinnu til að ná til nýrra viðskiptavina á ört vaxandi markaði.

Tæknileg framþróun er einn af lykilþáttum framtíðar félagsins. Framkvæmdastjóri þarf að vera vel að sér í upplýsingatækni og hafa sýn á hvernig nýta má sjálfvirkni, gervigreind og stafrænar lausnir við að auka skilvirkni og bæta þjónustu, í nánu samstarfi við tæknisvið og önnur rekstrarsvið félagsins.

Eignaumsjón fer með umsjón fjármuna í nafni viðskiptavina og því er lykilatriði að framkvæmdastjóri viðhaldi og styrki þá faglegu stjórnarhætti og traust sem félagið hefur byggt upp. Jafnframt þarf framkvæmdastjóri að vera sterkur leiðtogi hóps starfsfólks sem býr yfir mikilli reynslu og faglegri þekkingu.

Eignaumsjón hf. leitar að leiðtoga sem sér tækifæri í að ljá félaginu krafta sína og deilir sýn þess á að veita úrvalsþjónustu á markaði, sem kallar stöðugt eftir víðtækari og vandaðri þjónustu.

Óskað er eftir að ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn í einu skjali. Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl 2026.

Nánari upplýsingar veitir:
Kristján Pétur Sæmundsson, Brú Talent, [email protected]

Advertisement published25. March 2026
Application deadline12. April 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags