
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans.
Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.

Fræðslu- og lýðheilsusvið: Ráðgjafi grunnskóla í skólaþjónustu
Fræðslu- og lýðheilsusvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða ráðgjafa grunnskóla í skólaþjónustu til starfa. Um er að ræða 100% stöðu tímabundið til eins árs með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Teymisvinna vegna fatlaðra barna og annarra barna með ýmis frávik í þroska og hegðun.
- Ráðgjöf til foreldra og starfsfólks skóla.
- Námskeið og fræðsla fyrir fagfólk og foreldra.
- Samþætting verkefna og þróunarvinna á fræðslu- og lýðheilsusviði.
- Vinna að samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna þvert á svið/stofnanir.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í kennslu-, iðjuþjálfa- eða þroskaþjálfafræðum og starfsleyfi eins og við á.
- Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur.
- Gerð er krafa um þriggja ára reynslu af starfi innan stoðþjónustu grunnskóla.
- Haldbær þekking á þroskafrávikum, hegðunarerfiðleikum og tilfinningavanda.
- Þekking á lögum og reglugerðum sem varða þjónustu við börn.
- Reynsla og þekking á skipulagðri kennslu og vinnubrögðum (TEACCH).
- Reynsla af starfi í skólaþjónustu er æskileg.
- Góð samskiptahæfni, sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði.
- Áhugi og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og leggja sitt af mörkum til að bæta þjónustuna.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Góð íslenskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli.
- Góð enskukunnátta bæði í í töluðu og rituðu máli.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Advertisement published12. August 2026
Application deadline24. August 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Glerárgata 26, 600 Akureyri
Type of work
Skills
ProactiveHuman relationsIndependenceTeam work
Professions
Job Tags
Other jobs (3)
Similar jobs (12)

Frístundaráðgjafar / leiðbeinendur Hofið
Kringlumýri frístundamiðstöð

Leikskólakennari óskast fyrir næsta skólaár
Helgafellsskóli

Barnagæsla og aðstoð við heimilisstörf
Vinnvinn

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast í tímabundið starf í leikskólann Núp
Núpur

Sérkennsla - Stuðningur
Leikskólinn Furuskógur

Leikskólakennari eða uppeldismenntaður starfsmaður óskast til starfa
Leikskólinn Sumarhús

Sérkennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Ert þú kennari? þá er þetta starfið fyrir þig
Leikskólinn Sjáland

Sjálandsskóli - kennari í hönnun, smíði og nýsköpun
Garðabær

Stuðningsfulltrúi í félagsmiðstöð -Askja
Kringlumýri frístundamiðstöð

Forfallakennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Laus staða í Marbakka
Marbakki