
Marbakki
Leikskólinn Marbakki tók til starfa árið 1986 og er staðsettur á einkar fallegum stað í Sæbólshverfi í Kópavogi. Einkunnarorð Marbakka eru sjálfstæð, glöð og skapandi börn. Leikskólinn starfar eftir starfsaðferðum Reggio Emilia en undirstaða þeirra starfsaðferða er lýðræði. Lögð er áhersla á að börnin alist upp við að þau hafi heilmikið um sitt eigið líf að segja, þau hafi bæði rödd og áhrif. Litið er á barnið sem hæfileikaríkt og skapandi og að virkni þess og áhugahvöt sé árangursríkasti drifkrafturinn í námi þess.

Laus staða í Marbakka
Það er laus 100% staða leikskólakennara í leikskólanum Marbakka.
Leikskólinn Marbakki er fimm deilda leikskóli með rými fyrir 99 börn. Leikskólinn tók til starfa árið 1986 og er staðsettur í Sæbólshverfi í Kópavogi. Unnið er í anda starfsaðferða Reggio Emilia. Einkunnarorð skólans eru sjálfstæð, glöð og skapandi börn.
Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á: https://marbakki.kopavogur.is/
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur að menntun og uppeldi barna
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barna
- Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra
- Sinnir þeim verkefnum er varða uppeldi og menntun barna sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Reynsla af starfi með börnum
- Jákvæðni, þolinmæði og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Skapandi hugsun og metnaður í starfi
- Sjálfstæð vinnubrögð og samstarfshæfni
- Hæfileiki til að vera þátttakandi í lærdómssamfélagi í þróun
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Ef ekki fæst leikskólakennari kemur til greina að ráða einstakling með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinanda
Fríðindi í starfi
- Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
- Styttri vinnuvika, stytting er að hluta til tekin á milli jóla og nýárs, í dymbolviku og tveimur vetrarfríum
- Frír matur
Advertisement published11. August 2026
Application deadline25. August 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Marbakkabraut 4, 200 Kópavogur
Type of work
Skills
AmbitionTeam work
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Leikskólakennari óskast fyrir næsta skólaár
Helgafellsskóli

Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær

Barnagæsla og aðstoð við heimilisstörf
Vinnvinn

Píanókennari - Tónlistarskóli Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær

Aðstoðarleikskólastjóri - Leikskólinn Hvammur
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast í tímabundið starf í leikskólann Núp
Núpur

Leiðbeinandi í skilastöðu
Núpur

Leikskólakennari / leiðbeinandi
Leikskólinn Furuskógur

Sérkennsla - Stuðningur
Leikskólinn Furuskógur

Deildarstjóri
Leikskólinn Furuskógur

Leikskólakennari eða uppeldismenntaður starfsmaður óskast til starfa
Leikskólinn Sumarhús

Sérkennari - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær