
Frístundaráðgjafar / leiðbeinendur Hofið
Hofið sértæk félagsmiðstöð sem heyrir undir frístundamiðstöðina Kringlumýri óskar eftir að ráðafrístundaráðgjafa/ frístundaleiðbeinendur með umsjón í hlutastarf fyrir veturinn 2026-2027. Hofið þjónustar börn og unglinga með fötlun sem búa eða sækja skóla vestan Elliðaáa í Reykjavík.
Hofið er opið alla daga eftir að skóla lýkur og til klukkan 17. Markmið Hofsins er að vinna gegn félagslegri einangrun barna og unglinga. Starfið er einstaklingsmiðað og börnin og unglingarnir taka þátt í að móta dagskrána.
Við leitum að starfsfólki til að sjá um tengingu barna og unglinga sem taka þátt í starfi Hofsins inn í opið félagsmiðstöðvarstarf. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Í boði eru hlutastörf, allt að 45%, með sveigjanlegum vinnutíma eftir hádegi.
- Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 10-16 ára börn og unglinga í sértæku starfi.
- Tengja börn og unglinga úr Hofinu í opið félagsmiðstöðvarstarf.
- Framfylgja stefnu skóla- og frístundasviðs í málefnum frítímans.
- Samráð og samvinna við börn, unglinga og annað starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við foreldra.
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum og unglingum í sértæku félagsmiðstöðvarstarfi.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Færni í samskiptum.
- Íslenskukunnátta á stigi A2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Samgöngustyrkur
- Menningarkort - bókasafnskort
- Sundkort
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
- Heilsuræktarstyrkur
Icelandic














