
Akureyri
Akureyrarbær er stór vinnustaður með rúmlega 2.000 starfsmenn. Á hverju vori fjölgar starfsfólki um nálægt 1.200 manns vegna sumarafleysinga og vinnuskólans.
Starfsfólk Akureyrarbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem tryggja velferð og ánægju íbúa Akureyrar, hvort sem um er að ræða störf við leik- eða grunnskóla, íbúakjarna, rekstur mannvirkja, stjórnsýslu eða annað.

Forstöðumaður nýframkvæmda og viðhalds gatna og stíga
Laust er til umsóknar spennandi starf forstöðumanns nýframkvæmda og viðhalds gatna og stíga á umhverfis- og mannvirkjasviði Akureyrarbæjar.
Um er að ræða 100% stöðu sem er ótímabundin.
Á Akureyri finnur þú samfélag sem styður þig og fjölskylduna þína í fallegu umhverfi, vegalengdir eru stuttar og allt er innan seilingar.
Á sama tíma færð þú tækifæri til að takast á við spennandi verkefni og vaxa í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnun og samræming verkefna á sviði nýframkvæmda, endurbóta og viðhalds gatna og stíga.
- Stjórnun og samræming á verkefnum umferðar- og gatnalýsingar ásamt umferðaröryggismálum og umferðamerkingum.
- Stjórnun á framkvæmdum og rekstri bifreiðastæðasjóðs.
- Stýring á skipulagi innkaupa, birgðahaldi og starfsmannahald.
- Vinna að gerð fjárhags- og starfsáætlana fyrir sína deild.
- Stefnumótun og þróunarvinna á deildinni.
- Samstarf og samskipti við hagsmunaaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Gerð er krafa um háskólapróf (BA/BS) í byggingartæknifræði, byggingarfræði, byggingarverkfræði eða sambærilega menntun sem nýtist í starfi.
- Menntun á framhaldsstigi er krafist, sérsvið í gatna- og umferðarmálum kostur.
- Reynsla af verklegum framkvæmdum á viðkomandi starfssviði.
- Reynsla af verkefnastjórnun og áætlanagerð.
- Reynsla af stjórnun starfsmanna á sambærilegu verksviði.
- Hæfni til stjórnunar, skipulagningar, nýsköpunar og innleiðingu nýrra hugmynda og vinnubragða.
- Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg og þekking á teikniforritum.
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptafærni.
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti.
- Góð enskukunnátta.
- Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Advertisement published25. August 2025
Application deadline15. September 2025
Language skills

Required

Required
Location
Geislagata 9, 600 Akureyri
Type of work
Skills
Financial planningProactiveHuman relationsIndependencePlanningProject management
Professions
Job Tags
Other jobs (6)

Síðuskóli: Starfsfólk í skóla með stuðning
Akureyri

Þjónustu- og menningarsvið: Umsjón mötuneytis
Akureyri

Verkefnastjóri mælinga og eftirlits
Akureyri

Verkefnastjóri í nýframkvæmdir og endurbætur fasteigna og mannvirkja
Akureyri

Forstöðumaður umhverfis- og sorpmála
Akureyri

Félagsmiðstöðvarfulltrúar í grunnskólum Akureyrarbæjar
Akureyri
Similar jobs (12)

Byggingarhönnun á Norðurlandi
EFLA hf

Fagstjóri veitukerfa
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Byggingafræðingur/Byggingartæknifræðingur
Verksýn

Verkefnastjóri í nýframkvæmdir og endurbætur fasteigna og mannvirkja
Akureyri

Forstöðumaður umhverfis- og sorpmála
Akureyri

Byggingaverkfræðingur / Verkefnastjóri
Ráðum

Öflugur forstöðumaður óskast í íbúðakjarna fyrir geðfatlað fólk
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sérfræðingur í byggingarupplýsingalíkönum (BIM)
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Arkitekt / byggingafræðingur
Studio B ehf.

Verkefnastjóri um byggingu nýs íþróttahúss
Sveitarfélagið Hornafjörður

Yfirverkefnastjóri framkvæmda á byggingasviði
Atlas Verktakar ehf

Verkstjóri/verkefnastjóri
TILDRA Byggingafélag ehf.