Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík

Forstöðumaður fasteigna

Leiðtogahlutverk sem mótar framtíð mikilvægra innviða Háskólans í Reykjavík

Háskólinn í Reykjavík leitar að öflugum leiðtoga til að stýra fasteignamálum háskólans og leiða áfram þróun, rekstur og viðhald þeirra innviða sem skapa umgjörð fyrir metnaðarfullt háskólasamfélag. Núverandi húsnæði samanstendur af 30. þús fm. aðalbyggingu ásamt háskólagörðum HR þar sem 148 íbúðir eru í byggingu og 252 íbúðir í rekstri. Starfið felur í sér víðtæka ábyrgð á framkvæmdum, rekstri og þróun fasteigna með áherslu á sjálfbærni, gæði og þjónustu. Við leitum að einstaklingi sem býr yfir sterkri leiðtogahæfni, hefur farsæla reynslu af stjórnun og rekstri, og nýtur þess að leiða breytingar og byggja upp öflugt samstarf við nemendur og starfsfólk, skipulagsyfirvöld, framkvæmdaaðila og aðra hagaðila.

Forstöðumaður heyrir undir framkvæmdastjóra rekstrar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á daglegum rekstri fasteigna háskólans, stjórnun og þróun einingarinnar, þar á meðal mannauði einingarinnar.
  • Áætlanagerð og kostnaðareftirlit er tengist rekstri sviðsins.
  • Að starfa náið með stjórnendum í stefnumótun og innleiðingu langtímastefnu HR í rekstri fasteigna og húsnæðismála
  • Að tryggja hagkvæman, öruggan og sjálfbæran rekstur fasteigna háskólans.
  • Ber ábyrgð viðhaldi fasteigna og að undirbúningur og framkvæmd húsnæðis- og framkvæmdaverkefna sé með sem bestum hætti.
  • Að byggja upp öflugt teymi starfsfólks og tryggja gott samstarf við stjórnendur, starfsfólk skólans ásamt ytri hagaðilum.
  • Ábyrgð á öryggismálum er snýr að rekstri fasteigna skólans og gegnir al leiðandi hlutverki í öryggisnefnd háskólans, ber ábyrgð þ.á.m á gerð viðbragðsáætlana, brunavörnum og eftirliti ásamt öðrum tengdum þáttum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði byggingafræði, tæknifræði, verkfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfinu.
  • Víðtæk reynsla af rekstri og umsjón fasteigna.
  • Þekking og reynsla af byggingaframkvæmdum.
  • Reynsla af stjórnun og mannaforráðum.
  • Reynsla af útboðs- og samningagerð.
  • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfileikar.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta.
Advertisement published18. September 2026
Application deadline25. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Menntavegur 1, 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags