Frístundaklúbburinn Úlfurinn
Frístundaklúbburinn Úlfurinn
Frístundaklúbburinn Úlfurinn

Deildarstjóri frístundastarfs

Vilt þú leiða uppbyggingu á spennandi og mikilvægu frístundaúrræði fyrir börn og ungmenni?

Mosfellsbær leitar að kraftmiklum, hugmyndaríkum og metnaðarfullum deildarstjóra til að leiða þróun og uppbyggingu sértæks frístundaúrræðis fyrir börn og ungmenni. Um er að ræða gott tækifæri fyrir einstakling sem hefur brennandi áhuga á frístundastarfi og vill leiða breytingar á frístundaþjónustu, mynda sterk tengsl og byggja upp starfsemi sem styður við virkni, þátttöku og vellíðan barna og ungmenna.

Deildarstjóri ber ábyrgð á daglegri starfsemi úrræðisins, faglegri þróun þess og leiðir öflugan starfsmannahóp. Starfið felur í sér að móta og þróa nýjar leiðir í frístundastarfi þar sem áhersla er lögð á jafnvægi milli einstaklingsstuðnings, nærumhverfis og fjölbreytts hópastarfs sem styrkir félagsfærni, sjálfstæði, þátttöku og tengslamyndun.

Mikil áhersla verður lögð á að skapa samstarf og tengsl við fjölskyldur, skóla, frístundastarf, íþróttafélög og aðra þjónustuaðila þannig að börn og ungmenni fái aukin tækifæri til þátttöku í sínu nærumhverfi.

Um er að ræða áframhaldandi uppbyggingu og stækkun þjónustunnar þar sem deildarstjóri vinnur náið með forstöðumanni að því að móta framtíðarsýn, þróa starfshætti og innleiða nýjar lausnir sem mæta þörfum barna og fjölskyldna.

Þjónustan er veitt á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Um er að ræða 100% dagvinnustarf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun og skipulagning frístundaúrræðisins 
  • Skipulagning og þróun á faglegu starfi í samræmi við stefnu Mosfellsbæjar 
  • Ábyrgð á innra skipulagi og gæðum þjónustunnar 
  • Tekur þátt í starfsmannahaldi þar með talið ráðningar, þjálfun, handleiðsla og stuðningur við starfsfólk í samráði við forstöðumann 
  • Skipulag  mönnunar út frá þörfum starfsstaðarins 
  • Samskipti og samstarf við foreldra/forráðamenn 
  • Samstarf við skóla, þjónustumiðstöð og aðra fagaðila 
  • Þátttaka í þverfaglegu samstarfi í þágu barnanna og stuðlar að jákvæðum breytingum í þjónustunni 
  • Ábyrgð á öryggi, vellíðan og réttindum barna og ungmenna 
  • Umsjón með skráningum og upplýsingagjöf  
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. þroskaþjálfa, uppeldis- og menntunarfræði, tómstunda og félagsmálafræði 
  • Reynsla af starfi með fötluðum börnum og/eða ungmennum 
  • Reynsla af stjórnun eða mannaforráðum er æskileg 
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og samstarfi 
  • Sveigjanleiki og hæfni til að takast á við fjölbreytt verkefni 
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð 
  • Leiðtogahæfileikar og hæfni til að efla teymisvinnu 
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti 
  • Hreint sakavottorð
Advertisement published17. September 2026
Application deadline8. October 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Change managementPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Project management
Professions
Job Tags