
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar leggur rækt við mannlífið í borginni á fjölbreyttan hátt með rekstri menningarstofnanna og íþróttamannvirkja, ásamt því að styðja við grasrótina í listalífinu, íþróttum og barnamenningu. Sviðið skipuleggur hátíðir í borginni og styður við fjölmarga viðburði og hátíðir sem lífga upp á lífið í borginni allt árið um kring.
Um sviðið
Menningar og íþróttasvið heldur utan um rekstur borgarsafnanna; Borgarbókasafns, Listasafns Reykjavíkur, Borgarsögusafns sem og rekstur sundlauga borgarinnar, íþróttamannvirkja, hjólabrettagarða og gervigrasvalla.
Skrifstofa sviðsins heldur utan um stefnumótun, þróun og faglega stjórnun þeirra fjölbreyttu þjónustu og verkefna sem unnin eru á sviðinu. Á sviðinu er víðtækt samstarf við hagsmunaaðila í lista-, íþrótta- og æskulýðsstarf. Sviðið styður við barnamenningu með fjölbreyttum hætti og styrkir þátttöku barna og unglinga í íþróttastarfi með Frístundakortinu.
Umsýsla vegna funda menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs er á ábyrgð sviðsins sem og ábyrgð á að ákvarðanir ráðsins komi til framkvæmda.

Forstöðumaður Dalslaugar
Reykjavíkurborg auglýsir starf forstöðumanns Dalslaugar á Menningar- og íþróttasviði laust til umsóknar. Auk sundlaugar er í mannvirkinu leikskóli, grunnskóli, frístundaheimili, félagsmiðstöð, bókasafn og íþróttahús.
Hlutverk forstöðumanns er að reka Dalslaug og sameiginlega afgreiðslu fyrir allt húsið. Sameiginleg afgreiðsla kallast Miðdalur og sinnir gestum sundlaugar, bókasafns og öðrum sem þangað sækja og sér um veitingasölu og útleigu sala. Verið er að endurskipuleggja afgreiðsluna og verður ráðinn þjónustustjóri yfir henni.
Leitað er að skapandi og metnaðarfullum leiðtoga með góða samskiptahæfni og getu til að starfa í fjölbreyttu og krefjandi vinnuumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón með daglegri starfsemi Dalslaugar og afgreiðslunnar í Miðdal en það felur í sér ábyrgð og eftirlit með fjármálum, rekstri, innkaupum, mannvirki og mannauðsmálum.
- Þróa hlutverk afgreiðslu þannig að hún mæti betur þörfum gesta.
- Ábyrgð á að rekstur standist kröfur samkvæmt reglugerðum um starfsemina.
- Innleiðing og eftirlit með því að öryggiskröfum, lögum og reglugerðum, sem í gildi eru hverju sinni, sé framfylgt.
- Samskipti við fasteignastjóra og umsjónarfólk fasteigna tengt viðhaldi og ásynd mannvirkis.
- Ýta undir að öll geti upplifað og notið starfseminnar í Miðdal og þannig stuðlað að gleði, vellíðan og bættri lýðheilsu gesta.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Leiðtogahæfileikar.
- Víðtæk reynsla af gerð og eftirfylgni með fjárhagsáætlun og rekstrarstjórn.
- Víðtæk reynsla af stjórnun og mannaforráðum.
- Lipurð og færni í samvinnu og samskiptum.
- Reynsla af framsetningu og greiningu gagna og miðlun mikilvægra upplýsinga.
- Skipulagshæfni, fagleg og sjálfstæð vinnubrögð.
- Hæfni til að vinna fjölbreytt verkefni undir álagi.
- Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur.
- Íslenskukunnátta C1 og enskukunnátta B2 skv. evrópska tungumálarammanum.
Advertisement published20. April 2026
Application deadline4. May 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Úlfarsbraut 128
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Sviðsstjóri náms- og kennsluþjónustu
Háskólinn á Akureyri

Sviðsstjóri fjármála og rekstrar
Háskólinn á Akureyri

Framkvæmdastjóri Orlofssjóðs BHM
OBHM

Lausar stöður Leikskólakennara fyrir skólaárið 2026-2027
Leikskólinn Leikholt

Sviðsstjóri fjármála og rekstrar
ÍSOR

Þjónustustjóri tækniþjónustu
Reykjavíkurborg

Framkvæmdastjóri
Malbikstöðin

Stjórnandi á svið Mannvirkja og markaðseftirlits
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)

Sölufulltrúi í Blómval á Akureyri
Blómaval

Deildarstjórar
Leikskólinn Jötunheimar

Branch Operations Manager
Indie Campers

Sviðsstjóri heilbrigðissviðs
Fastus