

Sviðsstjóri fjármála og rekstrar
Háskólinn á Akureyri leitar að öflugum og framsýnum sviðsstjóra í nýtt lykilstarf innan skólans. Starfið býður upp á einstakt tækifæri til að móta fjármála- og rekstrarsvið og hafa raunveruleg áhrif á starfsemi og framtíðarþróun háskólans.
Viðkomandi gegnir lykilhlutverki í stjórnendateymi rektors og vinnur náið með rektor og öðrum stjórnendum að stefnumótun, ákvarðanatöku og áframhaldandi uppbyggingu starfseminnar. Starfið felur í sér leiðtogahlutverk þar sem áhersla er lögð á umbætur, góð samskipti, gagnadrifna nálgun og árangursríkan rekstur.
Háskólinn á Akureyri er eftirsóknarverður vinnustaður þar sem ríkir jákvætt starfsumhverfi, öflug liðsheild og metnaður fyrir fagmennsku og þróun sem endurspeglast m.a. í góðum niðurstöðum í könnuninni Stofnun ársins.
Næsti yfirmaður er rektor Háskólans á Akureyri.
Starfsstöðin er á háskólasvæðinu á Akureyri.
Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst.
- Ber ábyrgð á og mótar fjármála- og rekstrarsvið háskólans með áherslu á árangur, gagnsæi og sjálfbæra þróun.
- Leiðir og styður við teymi fjármála, greiningar og reksturs.
- Leiðir fjárhagslega stefnumótun, áætlanagerð og eftirfylgni í nánu samstarfi við rektor og stjórnendateymi háskólans.
- Tryggir áreiðanleika fjárhagsupplýsinga, öflugt innra eftirlit og gagnadrifna ákvarðanatöku.
- Leiðir þróun og innleiðingu verkferla á sviði fjármála, gagnavinnslu og þjónustu.
- Ber ábyrgð á rekstri og þróun fasteigna og innviða, þar á meðal viðhaldi, öryggis- og aðgengismálum.
- Stýrir samningum við þjónustuaðila og stuðlar að skilvirkum rekstri.
Sviðsstjóri fjármála og rekstrar situr samráðsfundi rektors með forsetum fræðasviða og sviðsstjórum háskólans. Þau málefni sem heyra undir sviðsstjóra fjármála og reksturs eru fjármál og greining, fasteignir og mötuneyti.
- Háskólapróf að lágmarki meistarastigi (eða sambærilegt) á viðeigandi sviði t.d. viðskiptafræði, hagfræði, rekstrarverkfræði).
- Reynsla af fjármálastýringu, reikningshaldi og rekstri.
- Farsæl reynsla af stjórnun og uppbyggingu teyma.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni og geta til að byggja upp traust og ná árangri í samstarfi við ólíka hagsmunaaðila.
- Mjög góð tölvukunnátta, þar á meðal færni í Excel og greiningartækjum (t.d. Power BI).
- Reynsla af gagnagreiningu og framsetningu stjórnunarupplýsinga.
- Reynsla af samningastýringu og rekstri fasteigna og innviða er kostur.
- Reynsla af launakerfum er kostur.
- Reynsla af stefnumótun, innleiðingu og breytingarstjórnun.
- Geta til að vinna sjálfstætt, forgangsraða og leiða umbætur með gagnadrifinni nálgun.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta.
Umsókn skal fylgja:
- Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.
- Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum.
- Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda.
- Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda.
English
Icelandic










